Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 75. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 648  —  75. mál.




Svar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Kristjáns Þórs Júlíussonar um ríkisábyrgðir vegna innleystra ábyrgða föllnu bankanna þriggja.

     1.      Hvaða liggur til grundvallar 3.072 millj. kr. fjárheimild, sem gert er ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu, vegna ríkisábyrgða sem fallið geta á ríkissjóð vegna innleystra ábyrgða föllnu bankanna þriggja og hvers vegna ber ríkissjóður enn ábyrgð á þeim eftir að hafa selt bankana? Óskað er eftir að gerð verði grein fyrir hverri ábyrgð fyrir sig.
    Ríkisábyrgðasjóður hefur tekið yfir lán Landsbankans hf. og Glitnis hf. frá og með 31.12.2010 sem eru með ábyrgð ríkissjóðs. Staða þessara lána pr. árslok 2010 er áætluð 22,5 mia.kr., þar af vegna Landsbanka hf. 22,1 mia.kr. og vegna Glitnis hf. 0,4 mia.kr. Ríkisábyrgðasjóður hefur þegar lýst kröfum í þrotabú bankanna.
    Fjárheimild til Ríkisábyrgðarsjóðs að fjárhæð 3.072 millj. kr. í fjárlagafrumvarpi 2011 var vegna áætlaðra greiðslna ríkissjóðs af þessum yfirteknu ábyrgðum á árinu 2010. Hér eftir munu afborganir og vextir yfirtekinna lána greiðast og færast með teknum lánum ríkissjóðs.
    Umrædd lán Ríkisábyrgðasjóðs eru annars vegar tilkomin vegna yfirtöku Landsbankans á skuldbindingum sem eftir voru í Landsbankanum þegar hann var hlutafjárvæddur á sínum tíma og hins vegar vegna kaupa Landsbankans á Lánasjóði landbúnaðarins. Skuldabréfin eru gefin út af eftirtöldum aðilum:
          Stofnlánadeild landbúnaðarins, sem var í eigu ríkisins og með ríkisábyrgð, sbr. lög nr. 45/1971, 11. gr.
          Lánasjóði landbúnaðarins, sem yfirtók eignir og skuldbindingar stofnlánadeildarinnar, sbr. lög nr. 68/1997, 13. gr., og bar ríkið ábyrgð á öllum skuldbindingum lánasjóðsins, sbr. 11. gr. sömu laga. Lánasjóðurinn var árið 2005 yfirtekinn af Landsbanka Íslands hf., og hélst ríkisábyrgðin á þegar útgefnum skuldbindingum.
          Landsbanka Íslands sem var í eigu og með ábyrgð ríkisins allt til 31.12.1997.
    Lánin eru tekin á árunum 1989–1998. Eins og sjá má í eftirfarandi töflu eru lán Lánasjóðs landbúnaðarins langstærst eða 13,8 mia.kr. en þar á eftir kemur lán vegna Lífeyrissjóðs bankamanna (Eftirlaunasjóður starfsmanna Landsbanka/Seðlabanka) að fjárhæð 3,8 mia.kr., erlent lán tekið 1997 að jafnvirði 2,6 mia.kr., upphaflega að fjárhæð 30 milljónir USD, nú að eftirstöðvum 23 milljónir USD eftir uppkaup á árinu 2010 og önnur lán að fjárhæð 1,9 mia.kr.

Lokagjalddagi m.kr.
Lánasjóður landbúnaðarins 2011 141
Lánasjóður landbúnaðarins 2012 20
Lánasjóður landbúnaðarins 2013 31
Lánasjóður landbúnaðarins 2014 49
Lánasjóður landbúnaðarins 2015 99
Lánasjóður landbúnaðarins 2016 521
Lánasjóður landbúnaðarins 2017 805
Lánasjóður landbúnaðarins 2010 267
Lánasjóður landbúnaðarins 2021 184
Lánasjóður landbúnaðarins 2023 11.700
13.817
Landsbanki Íslands hf. 2011 3.793
Landsbanki Íslands hf. 2011 2.600
Landsbanki Íslands hf. 2014 21
Landsbanki Íslands hf. 2021 688
Landsbanki Íslands hf. 2022 1.207
1.916
Samtals 22.126

    Lán Íslandsbanka eru vegna skulda Iðnlánasjóðs sem Fjárfestingarbanki atvinnulífsins tók yfir á sínum tíma þegar Iðnlánasjóður var settur inn í FBA. FBA sameinaðist síðar Íslandsbanka sem síðar varð Glitnir banki hf. Lánin eru tvö, tekin á árunum 1996 og 1997.

Lokagjalddagi m.kr.
Glitnir 2021 71
Glitnir 2022 332
Samtals 403

     2.      Hversu háar ábyrgðir hafa verið teknar út úr bankakerfinu sem seldar voru með því á sínum tíma, en eru nú að falla á ríkissjóð eða ríkissjóður er tekinn að greiða af? Óskað er eftir sundurliðun ábyrgðanna eftir árum allt frá sölu ríkisviðskiptabankanna þriggja.
    Við fall bankanna nam uppgreiðsluverð umræddra lýstra ábyrgða eftirfarandi:
    Landsbanki 20.697 millj. kr. og 30 milljónir USD.
    Glitnir 382 millj. kr.

    Greiðslur frá falli bankanna sundurliðast þannig:
    Árið 2008 voru greiddar 41 millj. kr.
    Árið 2009 voru greiddar 3.173 millj. kr.
    Árið 2010 eru greiðslur áætlaðar 4.590 millj. kr.

     3.      Ef þessar ábyrgðir falla allar á ríkissjóð, hvað kom þá nettó inn í ríkissjóð við söluna á bönkunum?

     Söluverð Landsbankans (í millj. kr.).

Sala 1999 3.283,0
Sala 2002 4.736,0
Sala 2002 12.300,0
Sala 2003 636,0
Heildarsöluverð Landsbanka 20.955,0

     Söluverð FBA (í millj. kr.).

Sala 1998 4.664,8
Sala 1999 9.710,0
Heildarsöluverð FBA 14.374,8

     Söluverð Búnaðarbanka (í millj. kr.).

Sala 1999 2.234,0
Sala 2003 11.900,0
Sala 2003 2.492,0
Heildarsöluverð Búnaðarbanka 16.626,0

    Samtals nam söluvirði bankanna þriggja 51.956 millj. kr. á verðlagi hvers árs.
    Greiðslur vegna ábyrgðanna á árunum 2008–2010 nema 7.804 millj. kr. og yfirtökuverð skulda Landsbanka og Glitnis í árslok 2010 er um 22.529 millj. kr. Samtals 30.333 millj. kr.

     4.      Er ráðherra kunnugt um fleiri eða annars konar ábyrgðir hjá bönkunum sem ríkissjóður kann að vera í ábyrgð fyrir?
    Bankarnir hafa ekki lýst frekari kröfum.

     5.      Hefur verið kannað hvort fleiri ábyrgðir leynist hjá bönkunum sem kunni að falla að hluta eða í heild á ríkissjóð?
    Bankarnir hafa ekki lýst frekari kröfum.