Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 361. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 674 — 361. mál.
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur um útblástur gróðurhúsalofttegunda í sjávarútvegi og landbúnaði.
1. Hver er útblástur gróðurhúsalofttegunda í sjávarútvegi og landbúnaði og hvernig skiptist hann?
Umhverfisstofnun heldur utan um tölfræðileg gögn hvað varðar útstreymi gróðurhúsalofttegunda og annast skýrslugerð til skrifstofu Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna í Bonn. Í skýrslunni, sem unnin var árið 2010 ( National Inventory Report, Umhverfisstofnun, 220 bls.), er gerð skilmerkileg grein fyrir útstreymi eftir margvíslegri flokkun og nær hún til áranna 1990–2008. Landbúnaðarháskóli Íslands safnar saman upplýsingum hvað varðar landbúnað og landnotkun og tekur einnig við upplýsingum frá Rannsóknastöð skógræktar ríkisins á Mógilsá og Landgræðslu ríkisins hvað varðar losun og bindingu sem tengist verkefnum þessara stofnana.
Losun er mæld í gígagrömmum af koldíoxíðígildum, þar sem gildi annarra gróðurhúsalofttegunda en koldíoxíðs er yfirfært til þeirrar einingar.
Heildarlosun í landbúnaði er um 12% af heildarlosun frá landinu, var 575 Gg árið 1990 en 566 Gg árið 2008 og hefur því dregist aðeins saman.
Gerð er grein fyrir útblæstri eftir tegundum og uppruna. Losun á metani (CH 4) var 287 Gg árið 1990 en 252 Gg árið 2008. Hláturgas (N 2O) var 288 Gg árið 1990 en 315 Gg árið 2008.
Uppruni losunar er flokkaður þannig: Gerjun (í vömb og maga) 1990 265 Gg og 2008 231 Gg. Niðurbrot búfjáráburðar 1990 er 54 Gg en 2008 49 Gg og losun úr landbúnaðarlandi (jarðvegi) 1990 256 Gg og 2008 287 Gg.
Í skýrslugjöf er tekið fram hver binding er sem tengist landnotkun, sem var fyrir skógrækt 1990 –19 Gg og 2008 –134 Gg og landgræðslu 1990 –280 Gg og 2008 –548 Gg.
Losun gróðurhúsalofttegunda vegna eldsneytisnotkunar í landbúnaði er ekki skráð sérstaklega og því ekki aðgreind frá annarri losun vegna notkunar eldsneytis.
Losun í sjávarútvegi er yfirgnæfandi vegna bruna eldsneytis og er skráð sér. Heildarlosun vegna eldsneytisnotkunar árið1990 nemur 1.717 Gg og þar af vegna sjávarútvegs 655 Gg. Hliðstæðar tölur vegna ársins 2008 voru 1.906 Gg og 517 Gg. Veruleg minnkun hefur því verið í losun fiskiskipaflotans á þessu tímabili.
2. Til hvaða aðgerða hefur ráðuneytið gripið til að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda og notkun jarðefnaeldsneytis í sjávarútvegi og landbúnaði?
Náið samráð er milli ráðuneyta undir yfirstjórn umhverfisráðuneytis hvað varðar stefnumörkun og framkvæmd aðgerða við að móta og framfylgja þeim skuldbindingum sem felast í viðbrögðum við örum loftslagsbreytingum af mannavöldum. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið og stofnanir þess hafa tekið virkan þátt í því starfi.
Ráðuneytið hefur og tekið virkan þátt í þeim samningafundum sem verið hafa í gangi síðastliðin ár um framkvæmd samningsins og þá sérstaklega varðandi mögulegt framhald Kyoto-bókunar þegar gildistími hennar rennur út í lok ársins 2012. Eru þar miklir hagsmunir að veði.
Samráðsnefndin hefur staðið að nokkrum meginverkefnum, svo sem gerð skýrslu undir forustu Brynhildar Davíðsdóttur við Háskóla Íslands ( Möguleikar til að draga úr nettóútstreymi gróðurhúsalofttegunda á Íslandi – Niðurstöður sérfræðinganefndar 2009, 230 bls., Umhverfisráðuneyti 2009), sem lýsir losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi og sennilegri þróun miðað við nokkra valkosti og tæknilega möguleika við að hafa áhrif á þá losun.
Starfsfólk Landbúnaðarháskóla Íslands, Rannsóknastöðvar Skógræktar ríkisins og Landgræðslu ríkisins hefur lagt mikið af mörkum bæði við að greina umfang losunar svo og að meta afleiðingar af líklegri þróun hvað varðar landbúnað og margvíslega landnotkun.
Halldór Björnsson á Veðurstofu Íslands stýrði gerð skýrslu vísindanefndar um loftslagsbreytingar ( Hnattrænar loftslagsbreytingar og áhrif þeirra á Íslandi, 118 bls., Umhverfisráðuneyti 2008).
Ríkisstjórn Íslands hefur formlega tilkynnt skrifstofu samningsins um þann ásetning að standa að svonefndu Kaupmannahafnarsamkomulagi sem samþykkt var á aðildarríkjafundi samningsins í Kaupmannahöfn í lok árs 2009. Það felur í sér að Ísland stefnir að því að ná 15% samdrætti í losun árið 2020 miðað við losun árið 1990, þó skilyrt þannig að Kyoto- bókunin og bókhaldsreglur hennar gildi áfram eftir 2012.
Vinnuhópur undir formennsku Huga Ólafssonar, skrifstofustjóra í umhverfisráðuneyti, með þátttöku annarra ráðuneyta vann aðgerðaáætlun ( Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum, 40 bls., Umhverfisráðuneyti 2010) sem miðar að þessu markmiði.
Í aðgerðaáætluninni kemur fram að meðal mikilvirkustu verkþáttanna sem þjóðin getur beitt til að ná settum markmiðum er að efla skógrækt og landgræðslu frá því sem nú er til að auka bindingu kolefnis í lífmassa og jarðvegi og er efling þessara verkefna mikilvæg forsenda fyrir því að ná þeim árangri sem stefnt er að.
Stærstur hluti nýskógræktar á Íslandi fer fram á vegum landshlutabundnu skógræktarverkefnanna og þótt þurft hafi að rifa seglin tímabundið á þeim vettvangi stefnir ráðuneytið að aukningu á næstu árum í samræmi við vilja Alþingis að stuðla að aukinni skógrækt í landinu sem samtímis gegnir mikilvægu hlutverki í loftslagsmálum.
Tvær af tíu lykilaðgerðum í aðgerðaáætluninni lúta að landnotkun, þ.e. efling landgræðslu og skógræktar og endurheimt votlendis. Tvær lúta að sjávarútvegi: aukin notkun lífeldsneytis á fiskiskipaflotann og aukin rafvæðing á fiskmjölsverksmiðjum, sem margar brenna enn olíu við hitun þótt hægt sé að nota rafmagn.
Í stefnumörkun stjórnvalda í loftslagsmálum frá 2007 er að finna yfirlit yfir aðgerðir sem gripið hafði verið til í samræmi við fyrri framkvæmdaáætlun í loftslagsmálum. Þar kemur m.a. fram að mikil endurnýjun hefur átt sér stað í fiskiskipaflotanum og almennt gildir að ný skip hafa betri orkunýtingu en sambærileg eldri skip, enda til mikils að vinna í þeim efnum fyrir útgerðir þegar eldsneytisverð er hátt. Sum útgerðarfyrirtæki hafa skoðað möguleika á að setja íslenskan orkusparnaðarbúnað í borð um skip sín, sem byggist á upplýsingatækni. Stjórnvöld hafa stutt við tilraunaverkefni á þessu sviði. Þá setti Hafrannsóknastofnunin upp orkusparnaðarkerfi í hafrannsóknaskipið Árna Friðriksson og dómsmálaráðuneytið gekk frá samningi um að setja slíkt kerfi í nýtt varðskip Landhelgisgæslunnar. Verið er að skipta út kælimiðlum í skipum, bæði ósoneyðandi HCFC-efni og HFC-efnum, sem valda gróðurhúsaáhrifum. Hægt er að nota ammoníak í þeirra stað, en það er ekki hættulaust og getur tekið tíma að skipta þessum efnum út.
Hvað landnotkun varðar er nefnt að árið 1996 ákvað ríkisstjórn Íslands að veita 450 millj. kr. viðbótarframlag til landgræðslu- og skógræktarverkefna til ársins 2000 til að auka bindingu kolefnis úr andrúmslofti og efla rannsóknir á bindingu. Auka átti árlega bindingu koldíoxíðs í gróðri um 100.000 tonn frá því sem hún var árið 1990. Átakið náði því markmiði og öðrum sem að var stefnt. Erfitt er að draga úr losun frá landbúnaði á hagkvæman hátt, en hún kemur einkum frá búfé og áburðarnotkun. Nefna má að gert er ráð fyrir að skoða betur möguleika á að nota hauggas frá búfjáráburði til að framleiða rafmagn, eða nýta það á annan hátt.
Sjávarútvegsráðuneytið starfrækti um skeið vinnuhóp um loftslagsmál, sem skilaði yfirliti um mögulegar aðgerðir á ýmsum sviðum í sjávarútvegi.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 674 — 361. mál.
Svar