Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 409. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 681  —  409. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um endurupptöku mála sem hafa verið dæmd í Hæstarétti.

Frá Álfheiði Ingadóttur.



     1.      Hvað hafa Hæstarétti borist margar beiðnir árlega frá 1. janúar 2000 um endurupptöku máls sem hefur verið dæmt í Hæstarétti, sbr. heimild í 169. gr. laga um meðferð einkamála?
     2.      Hversu oft hefur endurupptaka máls verið heimiluð ár hvert á framangreindu tímabili?
     3.      Hvaða reglur gilda um málsmeðferð umsóknar um endurupptöku og um birtingu niðurstaðna?


Skriflegt svar óskast.