Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 417. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 689  —  417. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um eigendur banka, jöklabréf og skuldbindingar ríkissjóðs.

Frá Vigdísi Hauksdóttur.



     1.      Hverjir eru eigendur Íslandsbanka, Arion banka og Landsbanka og í hvaða hlutföllum?
     2.      Hvað hefur ríkissjóður tekið á sig miklar ríkisábyrgðir gagnvart þessum bönkum eftir einkavæðingu þeirra árið 2009?
     3.      Hverjir eru eigendur jöklabréfanna sem liggja inni í Seðlabankanum og í hvaða hlutföllum? Hvað voru háar upphæðir að baki jöklabréfunum 1. janúar 2011?
     4.      Hvað tók íslenska ríkið á sig miklar ríkisábyrgðir samtals eftir hrun:
                  a.      frá 8. október 2008 – 31. desember 2008,
                  b.      frá 1. janúar 2009 – 31. desember 2009,
                  c.      frá 1. janúar 2010 – 31. desember 2010?
     5.      Hvað eru miklar ríkisábyrgðir á íslenska ríkinu ásamt ríkisfyrirtækjum og fyrirtækjum í einkageiranum miðað við 1. janúar 2011 (Landsvirkjun, Íbúðalánasjóður og Seðlabanki), sundurliðað eftir:
                  a.      Seðlabanka,
                  b.      Íbúðalánasjóði,
                  c.      Landsvirkjun,
                  d.      öðrum stofnunum á vegum ríkisins,
                  e.      fyrirtækjum í eigu einkaaðila, fyrirtækjum í eigu einkaaðila og ríkisins, svo sem Farice-sæstrengnum, gagnaveri Verne Holding og öllu öðru sem fellur undir þennan lið?
     6.      Hvað skuldaði íslenska ríkið hinn 15. janúar sl. erlendum þjóðum vegna áætlunar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og hvernig eru endurgreiðslur tryggðar? Hvað er lagt að veði til að tryggja endurgreiðslur?


Skriflegt svar óskast.