Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 425. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 698  —  425. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um framvindu verkefna til stuðnings Suðurnesjum.

Frá Eygló Harðardóttur.



    Hver er staða þeirra verkefna sem eiga að nýtast Suðurnesjum sérstaklega og ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í Reykjanesbæ í nóvember sl. að ráðast í nú þegar? Hvaða verkefni eru hafin, hverjir hafa verið skipaðir í starfshópa, í hvaða störf hefur verið ráðið og hvenær er áætlað að verkefnunum verði lokið og niðurstaða liggi fyrir?


Skriflegt svar óskast.