Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 426. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 699  —  426. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um flutning Landhelgisgæslunnar til Suðurnesja.

Frá Eygló Harðardóttur.



     1.      Hvernig hefur ráðherra staðið að því verkefni sem honum var falið á ríkisstjórnarfundi í nóvember sl., að skoða vandlega kosti þess að flytja starfsemi Landhelgisgæslu Íslands á öryggissvæðið á Miðnesheiði og láta gera hagkvæmniathugun á þeim kosti? Hefur verið skipaður starfshópur, fenginn ráðgjafi í verkefnið eða verkefnastjóri, haft samstarf við Landhelgisgæsluna o.s.frv.?
     2.      Hvenær mun niðurstaða liggja fyrir á hagkvæmni þess að flytja starfsemina til Suðurnesja?


Skriflegt svar óskast.