Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 350. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 712 — 350. mál.
velferðarráðherra við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar um fjölda aðgerða á spítölum og heilbrigðisstofnunum með skurðstofur.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvernig stendur á því að munur er á tölum um fjölda aðgerða á spítölum og heilbrigðisstofnunum með skurðstofur, annars vegar í svari heilbrigðisráðherra í þingskjali 283 og hins vegar í skýrslu heilbrigðisráðuneytis um endurskipulagningu sjúkrahúsa á suðvesturhorninu frá desember 2009?
Talning aðgerðakóða á bak við hvern sjúkling er með mismunandi hætti.
Höfundar skýrslu heilbrigðisráðuneytisins um endurskipulagningu sjúkrahúsa á suðvesturhorni landsins (hér eftir nefnd Kragaskýrsla) síuðu gögnin sem notuð voru með ákveðnum hætti til að gera upplýsingar sambærilegar. Upplýsingar í þingskjali 283 byggjast á svörum forstöðumanna viðkomandi stofnana. Munur er mismikill eftir stofnunum, en liggur í eftirfarandi þáttum:
Í Kragaskýrslu eru gögn síuð, eins og áður sagði, þannig að einungis eru taldir með aðgerðakóðar aðgerða sem framkvæma þarf á skurðstofu eins og fram kemur í neðanmálsgrein á bls. 29 í skýrslunni. Aðgerðakóðum vegna speglana, rannsókna sem tengjast skurðaðgerðum, aðgerða vegna fæðingarhjálpar, minni háttar aðgerða á húð og fleira er sleppt. Eftir standa að meðaltali 1,1–1,3 aðgerðakóðar á hvern sjúkling. Í svörum forstöðumanna, sem fram koma í þingskjali 283, eru þessir aðgerðakóðar taldir með ef gögn hafa ekki verið síuð með sama hætti og í skýrslunni. Ef kóðar vegna smærri viðvika eru taldir með má ætla að 1,8–2,0 kóðar séu á hvern sjúkling og liggur hluti skýringar á þeim mismun sem fram kemur í þingskjali 283 og Kragaskýrslu í þessu atriði.
Þá getur flokkun niður á sérgreinar verið breytileg milli sjúkrahúsa og því geta sambærilegar legur flokkast á mismunandi sérgreinar eftir sjúkrahúsum. Aðgerð sem flokkast sem kvensjúkdómaaðgerð á einu sjúkrahúsi getur flokkast sem almenn skurðlækning á öðru. Í Kragaskýrslu voru gögn unnin þannig að miðað var við sams konar flokkun aðgerða á öllum stöðum.
Mismunur sá sem fram kemur í talnaefni skýrslunnar og í svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn í þingskjali 283 sýnir mikilvægi þess að samræma aðferðir við mat á afköstum sjúkrastofnana á landinu, hvort sem það snýr að skráningu eða talningu gagna. Slík samræming upplýsinga er meðal forgangsverkefna nýs velferðarráðuneytis.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 712 — 350. mál.
Svar