Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 435. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 714  —  435. mál.




Fyrirspurn



til velferðarráðherra um greiðsluþátttöku í tannlækniskostnaði langveikra og fatlaðra barna á spítala.

Frá Vigdísi Hauksdóttur.



     1.      Hvernig er greiðsluþátttöku í tannlækniskostnaði langveikra og fatlaðra barna sem leggjast inn á spítala háttað og hvað er um mörg börn að ræða á ári að meðaltali?
     2.      Er barnatannlæknir fastráðinn við Barnaspítala Hringsins?


Skriflegt svar óskast.