Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 383. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 721  —  383. mál.




Svar



mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn Sigurgeirs Sindra Sigurgeirssonar um framlög til kvikmyndagerðar og fleiri listgreina.

     1.      Hver eru framlög í samningum við fagfélög annarra listgreina en kvikmyndagerðar, þ.e. leiklistar, tónlistar, myndlistar, hönnunar og ritlistar, samkvæmt fjárlögum yfirstandandi árs og tillögu ráðuneytisins fyrir næsta ár, en samkvæmt gildandi samningi mennta- og menningarmálaráðuneytis og fjármálaráðuneytis við fagfélög í kvikmyndagerð eiga framlög til kvikmyndasjóða að minnka um rúm 35%?
    Eftirfarandi er yfirlit yfir samninga ráðuneytisins á árinu 2010 við fagfélög í öðrum listgreinum en kvikmyndagerð og hvert fjárframlagið er áætlað á árinu 2011:

     Leiklist.
    Samkomulag við Leiklistarsamband Íslands fyrir árin 2010, 2011 og 2012, dags. 9. mars 2010. Framlagið á árinu 2010 var 2,4 millj. kr. og 2,1 millj. kr. á árinu 2011.
    Á fjárlögum 2010 voru 64,5 millj. kr. til starfsemi atvinnuleikhópa. Á árinu 2011 verða 58,4 millj. kr. til þessa, þar af eru 4 millj. kr. til reksturs á skrifstofu Sjálfstæðu leikhúsanna.

     Tónlist.
    Ekkert samkomulag er við fagfélag. Hins vegar er samkomulag við Útflutningsskrifstofu tónlistar (ÚTÓN) til þriggja ára, dags. 23. janúar 2009. Samkvæmt því nam framlagið 5 millj. kr. á árinu 2010. Í fjárlögum 2011 er gert ráð fyrir 8 millj. kr. til skrifstofunnar.
    Á fjárlögum 2010 voru 45,9 millj. kr. til Tónlistarsjóðs. Á árinu 2011 verða 43,6 millj. kr. til sjóðsins. Þá fékk verkefnið tónlist fyrir alla 6,3 millj. kr. á fjárlögum 2010 og jafnhá upphæð rennur til verkefnisins á árinu 2011.

     Myndlist.
    Á árinu 2010 fékk Samband íslenskra myndlistarmanna 5 millj. kr. fjárframlag til reksturs. Enginn samningur hefur verið gerður. Óvíst er með framlag á árinu 2011.
    Á árinu 2010 fékk Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar 14,4 millj. kr. framlag til reksturs og styrkja til myndlistarmanna samkvæmt samkomulagi dags. 4. febrúar 2010. Framlagið á árinu 2011 verður 13 millj. kr.
    Á árinu 2010 var gerður samningur við Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar um framlag til þátttöku Íslands í Feneyjatvíæringnum á árinu 2011. Framlag er alls 20 millj. kr. Helmingur var greiddur á árinu 2010 og seinni helmingur verður greiddur á árinu 2011.

     Hönnun.
    Samningur við fagfélög á sviði hönnunar er við Hönnunarmiðstöð Íslands ehf. sem öll fagfélögin standa að, en sá samningur er frá 7. mars 2008. Á árinu 2010 var framlag ráðuneytisins 8,5 millj. kr. Gert er ráð fyrir sama framlagi á árinu 2011. Á fjárlögum 2011 eru veittar 1,5 millj. kr. til hönnunarkaupstefnu.
     Ritlist.
    Enginn samningur er við fagfélag, en á árinu 2010 fékk Rithöfundasamband Íslands 900 þús. kr. til reksturs og 2,9 millj. kr. til Höfundamiðstöðvar sambandsins: Skáld í skólum. Ekki liggur fyrir hversu há fjárframlögin verða á árinu 2011.
    Á fjárlögum 2010 voru 42,5 millj. kr. til Bókmenntasjóðs. Á árinu 2011 verða 39,5 millj. kr. til sjóðsins.

     2.      Hvers vegna er tillaga um niðurskurð til kvikmyndagerðar ekki endurskoðuð í ljósi upplýsinga í skýrslu sem Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda lét vinna í vor þar sem kemur fram að þessi niðurskurður til kvikmyndasjóða í mennta- og menningarmálaráðuneytinu leiðir til tekjutaps í fjármálaráðuneytinu sem er meira en nemur hinum meinta sparnaði?
    Ráðuneytið fékk kröfu um að draga úr framlögum til menningarmála samtals um 18% að meðaltali við gerð fjárlaga áranna 2010 og 2011. Framlög til Kvikmyndasjóðs voru lækkuð um 24% á fjárlögum 2010 miðað við fjárlög 2009, úr 590 millj. kr. í 450 millj. kr., en sjóðnum var hlíft við gerð fjárlagafrumvarps 2011. Því má segja að almennur niðurskurður til menningarmála hafi verið verulegur en hvað mestur til kvikmyndagerðar sem var sá geiri innan menningarmála sem vaxið hafði mest á undanförnum árum. Vonir standa til að hægt verði að efla stuðning við menningarmál með batnandi horfum í efnahagsmálum. Nú eru að hefjast viðræður við fagfélög kvikmyndagerðarmanna með aðkomu kvikmyndaráðs um gerð nýs samkomulags um fjárframlög til kvikmyndagerðar til næstu ára.