Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 441. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 727 — 441. mál.
til innanríkisráðherra um boðunarkerfi fyrir ferðamenn á hættuslóðum.
1. Stendur til að kaupa boðunarkerfi í tengslum við almannavarnir sem er þeim eiginleikum gætt að senda má neyðarboð með sms-smáskilaboðum í gsm-síma allra ferðamanna, jafnt íslenskra sem erlendra, sem eru þar staddir sem náttúruhamfarir geisa eða eru yfirvofandi, með beiðni um að allir yfirgefi hættuslóðirnar hið fyrsta?
2. Ef svo er, hvenær má áætla að hægt sé að taka búnaðinn í notkun hér á landi?
3. Eru til upplýsingar um hvað slíkur búnaður kostar?
4. Er búnaðurinn þess eðlis að hægt sé að senda sms-smáskilaboð á mismunandi tungumálum eftir því frá hvaða landi eigandi símans er?
5. Er slíkur búnaður nýttur í nágrannalöndum okkar, svo sem í Noregi?
Skriflegt svar óskast.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 727 — 441. mál.
Fyrirspurn
til innanríkisráðherra um boðunarkerfi fyrir ferðamenn á hættuslóðum.
Frá Siv Friðleifsdóttur.