Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 342. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 740 — 342. mál.
velferðarráðherra við fyrirspurn Gunnars Braga Sveinssonar um hagræði við sameiningu Landspítala og Borgarspítala.
1. Hvaða hagræði hefur falist í sameiningu Landspítala og Borgarspítala?
Markmið sameiningar stóru sjúkrahúsanna í Reykjavík var að gera starfsemina skilvirkari og hagkvæmari, auka gæði þjónustunnar og ánægju sjúklinga og styrkja rannsóknir og kennslu innan sjúkrahússins. Með sameiningunni voru sérgreinar sameinaðar á einn stað sem gaf af sér faglega sterkari einingar með auknum möguleikum á sérhæfingu.
Í desember 2005 gaf Ríkisendurskoðun út skýrslu um árangur sameiningar sjúkrahúsanna í Reykjavík. Í skýrslunni kom fram að raunkostnaður hafi nánast staðið í stað á tímabilinu 1999–2004 að teknu tilliti til breytinga á vísitölum. Á sama tímabili fækkaði stöðugildum um 3%, engu að síður fjölgaði háskólamenntuðum starfsmönnum hlutfallslega en á móti fækkaði í hópi ófaglærðra. Íbúum á þjónustusvæði sjúkrahússins fjölgaði frá sameiningu og meðalaldurinn hækkaði. Að teknu tilliti til alls þessa telur Ríkisendurskoðun að stjórnendum spítalans hafi tekist að halda kostnaði í skefjum á umræddu tímabili. Þá segir í skýrslunni að líklegt sé að þróunin hefði orðið önnur ef sjúkrahúsin hefðu starfað áfram hvort í sínu lagi.
Í skýrslunni kemur einnig fram að á tímabilinu 1999–2004 hafi náðst árangur í því að flytja þjónustu af legudeildum yfir á dag- og göngudeildir. Jafnframt hafi afköst spítalans aukist um 9% á tímabilinu mæld í fjölda meðferða, stöðugildum starfsmanna fækkað um 3% eins og áður sagði og framleiðni vinnuafls aukist um 12,6%.
Frá 2005 hefur verið haldið áfram á sömu braut og stöðugt unnið að því að hagræða í rekstri spítalans. Rekstur hefur verið straumlínulagaður með því meðal annars að fækka stjórnendum og starfsfólki, sameina deildir, bjóða út vöru- og þjónustukaup og auka skilvirkni enn frekar, meðal annars með því að breyta þjónustu legudeilda í þjónustu dag- og göngudeilda svo eitthvað sé nefnt. Til að mynda fjölgaði komum á göngudeild um 70% á árunum 2000–2009, innlögnum fækkaði um tæp 20% og meðallegutími styttist einnig um tæp 20%. Á sama tíma fjölgaði komum á slysa- og bráðamóttökur spítalans um rúm 30%.
Þá er áhugaverður og forvitnilegur mælikvarði á starfsemi spítalans dreginn hér fram til að sýna fram á aukna starfsemi fyrir minna fé. Vísitala hinna ýmsu kostnaðarliða er mæld og borin saman. Vísitala þjónustu er mæld, en hún er þannig samsett að ein lega er vegin á móti þremur dagdeildarkomum og tólf göngudeildarkomum. Þetta er mælieining sem notuð hefur verið af ráðgjafarfyrirtækinu Ernst & Young. Til samanburðar er vísitala launakostnaðar spítalans mæld. Í ljós kemur að vísitala þjónustu fer frá því að vera 100 árið 2002 í um 120 árið 2009 og á sama tíma fellur vísitala launakostnaðar úr 100 í 97,5. Í áðurnefndri úttekt Ríkisendurskoðunar vógu legur, dagdeildar- og göngudeildarkomur vegnar jafnt. Hefði sú aðferð verið notuð til að mæla vísitölu þjónustu þýddi það mun hærri vístölu en 120 sem aðferðarfræði Ernst & Young gaf fyrir árið 2009.
Annað dæmi um hagræði af sameiningu sjúkrahúsanna tveggja er að fram á síðasta ár var rekin bráðaþjónusta bæði í Fossvogi og við Hringbraut. Með sameiningu þessara eininga í apríl á síðasta ári má ætla að náðst hafi a.m.k. um 160 millj. kr. sparnaður á ársgrundvelli. Um er að ræða beinan sparnað í rekstri bráðasviðs og afleiddan sparnað á öðrum sviðum spítalans.
2. Hvenær var árangur af sameiningunni metinn síðast?
Ávinningur af sameiningunni hefur ekki verið metinn með formlegum hætti frá því skýrsla Ríkisendurskoðunar kom út. Í svari við fyrri spurningunni kemur fram að stöðugt er unnið að því að hagræða í rekstri spítalans sem borið hefur ágætis árangur. Að mati sérfræðinga á spítalinn enn töluvert inni þegar horft er til frekari hagræðingar. Í lok ársins 2008 var gerð úttekt á beinum rekstrarábata þess að flytja rekstur Landspítala í nýtt sjúkrahús við Hringbraut. Rekstrarábati var metinn 2,6 milljarðar kr. á hverju ári sem Landspítali er starfræktur á einum stað í nýju húsnæði samanborið við núverandi rekstrarumhverfi. Hagræðing af sameiningu bráðamóttaka í Fossvogi og við Hringbraut var þá meðtalin. Að auki var kostnaður við viðhald og endurbyggingu þess gamla húsnæðis sem spítalinn er nú í metinn nálægt 900 millj. kr. að meðaltali á ári hverju næstu 20 árin. Samtals rekstrarábati af sameiningu í nýju sjúkrahúsi er því metinn 3,5 milljarðar kr. árlega eða 3,3 milljarðar kr. til viðbótar við þá hagræðingu sem þegar er komin fram með sameiningu bráðamóttaka.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 740 — 342. mál.
Svar