Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 469. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 760  —  469. mál.




Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um viðmið og mælikvarða í alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands.

Frá Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur.



    Hvaða viðmið og mælikvarðar eru lögð til grundvallar við að ná fram meginmarkmiðum með alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands, sem skv. 1. gr. laga nr. 121/2008 eru að styðja viðleitni stjórnvalda í þróunarlöndum til að útrýma fátækt og hungri, stuðla að efnahags- og félagslegri þróun, þ.m.t. mannréttindum, menntun, bættu heilbrigði, jafnrétti kynjanna, sjálfbærri þróun og sjálfbærri nýtingu auðlinda?


Skriflegt svar óskast.