Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 475. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 769 — 475. mál.
um höfuðborg Íslands.
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Helgi Hjörvar.
Alþingi ályktar að fela forsætisráðherra að ganga til viðræðna við borgarstjórann í Reykjavík um samning þar sem fram koma skyldur og réttindi Reykjavíkurborgar sem höfuðborgar Íslands.
Allir vita að höfuðborg Íslendinga er í Reykjavík. Jafnan er miðað við að þetta hafi orðið þegar þar var sett niður heimastjórn árið 1904 en í Víkinni var áður háð Alþing hið nýja frá sumri 1845, og æ síðan.
Í stjórnarskrá er höfuðborgar að engu getið en þó kveðið á um að Alþingi komi „jafnaðarlega“ saman í Reykjavík, að forseti Íslands hafi aðsetur „í Reykjavík eða nágrenni“ og að stjórnarráðið sé í Reykjavík. Engin lög fjalla um höfuðborg Íslands eða höfuðstað, þótt það orð komi fyrir í lagasafninu (38. gr. laga nr. 80/1938, um stéttarfélög og vinnudeilur).
Allajafna er við það miðað um höfuðborg að hún sé aðsetur æðsta valds í ríkinu og miðstöð stjórnsýslu. Skyldur höfuðborgarinnar sem sveitarfélags eru því víðtækari en annarra sveita ríkisins þar sem íbúar hennar og leiðtogar þeirra verða í starfsháttum og skipulagi að taka tillit til þjónustuhlutverks borgarinnar við alla landsmenn. Réttindi verður höfuðborgin að hafa á móti, þar á meðal þau að samráð sé haft við stjórnendur hennar um þær ákvarðanir ríkisstjórnarinnar og þings sem snerta mikilvæga hagsmuni borgarbúa, svo sem atvinnufæri, skipulag og yfirbragð.
Umræða og átök um Reykjavíkurflugvöll undanfarna áratugi hafa sýnt að nauðsynlegt er að treysta undirstöður Reykjavíkur sem höfuðborgar Íslands þannig að almenningur og forustumenn í borg og ríki geri sér glögga grein fyrir skyldum og réttindum sem fylgja höfuðborgarhlutverkinu, þar á meðal á samgöngusviði. Ákvarðanir og tillögur um flutning ýmiss konar stjórnsýslustöðva út á land hefur ekki síður skort þá umgjörð sem fælist gæti í skýrri sýn um höfuðborgarhlutverkið á okkar tímum.
Í tillögunni er forsætisráðherra falið að leita viðræðna við borgaryfirvöld um eins konar höfuðborgarsamning. Í þeim samningi yrðu reifaðar skyldur Reykjavíkurborgar og réttindi sem höfuðborgar, getið þeirra breytinga á lögum og öðrum regluramma sem samningsaðilar yrðu ásáttir um að beita sér fyrir, og kveðið á um skipulegt samráð ríkisstjórnarinnar, Alþingis og borgarstjórnar um ákvarðanir sem sérstaklega snerta stöðu Reykjavíkur sem höfuðborgar.
Gert er ráð fyrir að forsætisráðherra, og eftir atvikum borgarstjóri, undirbúi viðræðurnar með athugun á stöðu Reykjavíkur sem höfuðborgar og samskiptum borgarstjórnar og ríkisvalds frá upphafi aldarinnar sem leið. Einnig er eðlilegt að aðilar kanni stöðu höfuðborgar í helstu grannlöndum í aðdraganda viðræðnanna.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 769 — 475. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um höfuðborg Íslands.
Flm.: Mörður Árnason, Valgerður Bjarnadóttir, Skúli Helgason,
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Helgi Hjörvar.
Alþingi ályktar að fela forsætisráðherra að ganga til viðræðna við borgarstjórann í Reykjavík um samning þar sem fram koma skyldur og réttindi Reykjavíkurborgar sem höfuðborgar Íslands.
Greinargerð.