Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 415. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 783  —  415. mál.




Svar



forseta Alþingis við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar um kostnað við stjórnlaganefnd.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hversu mikill er kostnaðurinn við stjórnlaganefnd orðinn núna, hversu mikill er áætlað að hann verði og hvernig skiptist hann?

    Stjórnlaganefnd var kosin af Alþingi 16. júní 2010 á grundvelli ákvæðis til bráðabirgða í lögum um stjórnlagaþing, nr. 90/2010. Greiðslur til nefndarmanna eru ákveðnar af forseta Alþingis. Hverjum nefndarmanni eru greiddar 15 einingar (25.110 kr.) fyrir hvern formlegan vinnufund, sem stendur í minnst 2 stundir, og telst sú greiðsla þóknun fyrir bæði fundarsetuna og nauðsynlegan undirbúning fundarins. Formaður fær hálfu meira, eða 22,5 einingar, fyrir hvern formlegan vinnufund.
    Rétt er að geta þess að í bréfi, dags. 13. júlí 2010, óskaði formaður nefndarinnar ákvörðunar forseta Alþingis um þóknun fyrir nefndina. Skorta þótti ótvíræða lagaheimild fyrir forseta til að úrskurða í málinu en eftir breytingar sem voru samþykktar á lögum um stjórnlagaþing 9. september 2010, þar sem tekinn var af vafi um úrskurðarvald forseta um greiðslur af þessu tagi, úrskurðaði forseti um greiðslur til nefndarinnar og var hann kynntur stjórnlaganefnd 15. september. Nefndin gerði athugasemdir við úrskurðinn, taldi greiðslur of lágar miðað við umfang verksins, og var hann endurskoðaður 25. október 2010 með þeirri niðurstöðu sem áður greinir.
    Auk þeirra greiðslna, sem hér eru nefndar, getur nefndin falið einstökum nefndarmönnum viðbótarvinnu umfram vinnu við undirbúning funda og annað sem fylgir nefndastarfi almennt, svo sem fyrir samantektir og úrlausn afmarkaðra verkefna. Fyrir þá vinnu eru greiddar 5 einingar (8.370 kr.) á hverja vinnustund.
    Heildarkostnaður við stjórnlaganefnd til ársloka 2010 er 12.074.386 kr. Byggist hann á uppgjöri fyrir vinnu fram til 16. desember 2010 og skiptist þannig:
Nefndaþóknanir til stjórnlaganefndar
8.664.624 kr.
Launatengd gjöld
1.489.547 kr.
Ferðakostnaður, gisting, fundaaðstaða
1.920.215 kr.
    Eftirfarandi er yfirlit um greiðslur til einstakra nefndarmanna í stjórnlaganefnd fyrir tímabilið 16. júní til 16. desember 2010:
Aðalheiður Ámundadóttir
1.180.170 kr.
Ágúst Þór Árnason
1.180.170 kr.
Björg Thorarensen
1.129.950 kr.
Ellý Katrín J. Guðmundsdóttir
1.129.950 kr.
Guðrún Pétursdóttir, formaður
1.809.594 kr.
Njörður P. Njarðvík
1.155.060 kr.
Skúli Magnússon
1.079.730 kr.
8.664.624 kr.
    Auk greiðslna fyrir nefndastörf liggur fyrir áætlun um sérverkefni sem nokkrir nefndarmenn munu vinna fyrir utan almenn nefndastörf í samstarfi við sérfræðinga. Í fjáraukalögum 2010 voru veittar 12 millj. kr. til kaupa á sérfræðiþjónustu en reikningar yfir þá vinnu höfðu ekki borist fyrir lok janúarmánaðar sl.
    Ekki liggur fyrir áætlun um kostnað við störf nefndarinnar að öðru leyti á þessu ári, 2011.