Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 490. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 792  —  490. mál.




Fyrirspurn



til efnahags- og viðskiptaráðherra um skipun nefndar um framtíðaruppbyggingu fjármálakerfisins.

Frá Eygló Harðardóttur.



    Hefur nefnd sú verið skipuð sem var ætlað það hlutverk að móta stefnu um framtíðaruppbyggingu fjármálakerfisins, m.a. með hliðsjón af ábendingum í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis og tillögum þingmannanefndar Alþingis, sbr. ákvæði til bráðabirgða VI í lögum nr. 75/2010, um breyting á lögum um fjármálafyrirtæki? Ef svo er ekki, hver er ástæða þess að nefndin hefur ekki enn verið skipuð?


Skriflegt svar óskast.