Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 347. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 801  —  347. mál.




Svar



velferðarráðherra við fyrirspurn Gunnars Braga Sveinssonar um mat á kostnaði við rekstur sjúkrahúsa og heilbrigðisstofnana.

     1.      Er kostnaður við rekstur sjúkrahúsa og heilbrigðisstofnana m.a. metinn með því að bera saman sams konar þjónustu á Landspítala og öðrum stofnunum? Ef svo er, hvernig er þessi samanburður metinn og reiknaður?
    Aðferðir við mat á kostnaði og starfsemisgreiningu sjúkrastofnana eru í stöðugri þróun og áhersla er lögð á samræmdar upplýsingar og bókun kostnaðar á stofnunum til að einfalda samanburð og gera hann mögulegan.
    Á Landspítala hefur kostnaður um nokkurt skeið verið greindur með fjölþjóðlegu flokkunarkerfi, DRG (Diagnosis Related Groups). Kerfið er sjúkdómsmiðað flokkunarkerfi sem á uppruna sinn að rekja til Bandaríkjanna frá því snemma á áttunda áratugnum. Það byggist á sjúkdómsgreiningum og hefur verið notað víða um heim, m.a. á Norðurlöndunum, til að flokka og kostnaðargreina alla þjónustu við sjúklinga. Það auðveldar samanburð við önnur sjúkrahús sem kostnaðargreina þjónustu sína með sama hætti, einkum erlendis. Kerfið hefur ekki verið innleitt á öðrum sjúkrahúsum hér á landi vegna smæðar þeirra og af þeim sökum var þeirri aðferð beitt við mat á kostnaði heilbrigðisþjónustu Kragasjúkrahúsanna að skilgreina svokallaðar framleiðslueiningar. Hér er átt við þjónustueiningar sem reiknaðar eru út frá mismunandi samsetningu þjónustu á legudeildum, dagdeildum og göngudeildum og eru ekki sambærilegar við framleiðslueiningar DRG-kerfisins. Fjölda framleiðslueininga er deilt upp í rekstrarkostnað, sem er til kominn vegna þjónustu við innritaðan sjúkling á viðkomandi deild, og fæst þannig meðalkostnaður við hverja framleiðslueiningu. Við samanburð þarf að hafa í huga misjafna samsetningu sjúklingahópa og ekki er hægt að bera saman kostnað framleiðslueininga milli sjúkrahúsa nema þjónustan sé sambærileg. Í skýrslu heilbrigðisráðuneytisins um endurskipulagningu sjúkrahúsþjónustu á Suðvesturhorninu, svokallaðri Kragaskýrslu, var meðalkostnaður framleiðslueininga Kragasjúkrahúsanna borinn saman við meðalkostnað framleiðslueininga á Landspítala, sem sóttur var í DRG-kerfið. Þar sem samsetning á sjúklingahópi Landspítala er nokkuð frábrugðin samsetningu sjúklingahóps á Kragasjúkrahúsunum var tekinn saman listi yfir 10–15 algengustu NCSP og NCSP+ aðgerðarkóða (NCSP: Nordic Classification of Surgical Procedures) á hverju sjúkrahúsi fyrir sig og borinn saman við sambærilegan sjúklingahóp á Landspítala. Þessari aðferð er lýst nánar í Kragaskýrslunni.

     2.      Hvernig verður því mati háttað ef sambærileg þjónusta verður lögð niður á öðrum stofnunum en Landspítala og Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri?
    Hlutverk sjúkrahúsa er skilgreint í lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, en því hefur ekki verið breytt síðan lögin tóku gildi. Landspítali og Sjúkrahúsið á Akureyri eru umdæmissjúkrahús í sínu heilbrigðisumdæmi ásamt því að vera sérhæfð sjúkrahús fyrir landið allt. Hluti starfsemi þeirra er sambærilegur við starfsemi annarra sjúkrahúsa og hefur verið borinn saman á þann hátt sem lýst er að framan. Eins og fram kemur í svari við 1. tölul. eru aðferðir við mat á kostnaði sjúkrahúsa í stöðugri þróun.