Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 436. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 802 — 436. mál.
velferðarráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur um þjónustu talmeinafræðinga.
1. Hver er munurinn á samningum talmeinafræðinga á Akureyri og í Reykjavík við Tryggingastofnun? Eru samningar öðruvísi ef um landsbyggðina er að ræða?
Enginn munur er á samningum við talmeinafræðinga á Akureyri og í Reykjavík. Rammasamningur Sjúkratrygginga Íslands við talmeinafræðinga frá 2. febrúar 2010 er eini samningurinn á þessu sviði og stendur sá samningur öllum talmeinafræðingum á landinu til boða. Samningar sem miða að því að þjónusta fólk á landsbyggðinni eru því í engu frábrugðnir samningum sem þjóna fólki í þéttbýli. Þannig háttar málum nú að sjö talmeinafræðingar * hafa sagt sig inn á samninginn og starfa í samræmi við hann. Það er u.þ.b. þriðjungur af fjölda þeirra talmeinafræðinga sem störfuðu samkvæmt samningi þegar best lét. Gagnvart sjúklingum er munurinn sá að þeir sem leita sér þjónustu hjá talmeinafræðingum sem starfa samkvæmt samningnum njóta hærri greiðsluþátttöku sjúkratrygginga en þeir sjúklingar sem kjósa að leita þjónustu hjá þeim sem starfa utan samnings og innheimta greiðslu samkvæmt eigin taxta hverju sinni.
2. Er það rétt að sjúkratryggðir einstaklingar, hvort heldur börn eða fullorðnir, sem sækja sömu þjónustu til löggiltra talmeinafræðinga á stofu fái ekki sömu endurgreiðslu frá Sjúkratryggingum Íslands samkvæmt reglugerð heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra nr. 1166/2007? Ef svo er, finnst ráðherra eðlilegt að íslenska ríkið mismuni sjúkratryggðum þegnum sínum á þann hátt?
Samkvæmt 21. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, tekur hún til nauðsynlegrar sjúkraþjálfunar, iðjuþjálfunar og talþjálfunar sem samið hefur verið um. Á grundvelli greinarinnar er í gildi reglugerð nr. 721/2009, um þjálfun sem sjúkratryggingar taka til og hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði við þjálfun. Reglugerðin tryggir að allir einstaklingar sem leita sér þjónustu hjá talmeinafræðingi sem starfar samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar Íslands, hvort heldur börn eða fullorðnir, njóta sömu þátttöku ríkisins í kostnaði. Skv. 38. gr. sömu laga er í sérstökum tilfellum heimilt tímabundið að endurgreiða sjúkratryggðum útlagðan kostnað á grundvelli gjaldskrár, séu samningar ekki fyrir hendi, en ráðherra setur reglugerð um nánari framkvæmd, m.a. um tímalengd heimildarinnar og skilyrði fyrir endurgreiðslu. Vegna sjúklinga þeirra talmeinafræðinga sem ekki vilja vera aðilar að rammasamningi Sjúkratrygginga Íslands er í gildi reglugerð nr. 1166/2007 til að opna heimild fyrir sjúkratryggingar til endurgreiðslu til viðkomandi sjúklinga. Það er óeðlilegt að slík reglugerð gefi sömu endurgreiðslu og greiðsluþátttaka sjúkratrygginga sem næst með samningum. Skv. 5. mgr. 40. gr. laganna skal aðili sem hyggst hefja sjálfstæðan rekstur heilbrigðisþjónustu þar sem gert er ráð fyrir að ríkið greiði kostnað sjúklings að hluta eða öllu leyti hafa gert samning við sjúkratryggingastofnunina áður en hann hefur rekstur, nema fyrir liggi einhliða ákvörðun ráðherra um greiðsluþátttöku á grundvelli sérstakrar heimildar í öðrum lögum. Slík einhliða ákvörðun ráðherra getur þó lögum samkvæmt aldrei verið nema tímabundin.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 802 — 436. mál.
Svar

- Neðanmálsgrein: 1
- * Fjórir eru á Akureyri, einn í Reykjanesbæ, einn á Akranesi og einn á Sauðárkróki.