Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 410. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 809  —  410. mál.




Svar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar um skattalega meðferð á eftirgjöf skulda.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hefur eftirgjöf skulda einstaklings eða lögaðila í einhverjum tilfellum verið skattlögð í samræmi við lög nr. 104/2010? Svar óskast sundurliðað eftir lánastofnunum.

    Lög nr. 104/2010, um breyting á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum (skattaleg meðferð á eftirgjöf skulda), tóku gildi 2. júlí 2010. Fyrstu mögulegu merki um virkni þeirra munu væntanlega sjást við komandi álagningarvinnslu skattframtala 2011. Ekki er því unnt að veita umbeðin svör við fyrirspurninni á þessum tímapunkti.