Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 509. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 838  —  509. mál.




Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um kynjahlutfall styrkþega nýsköpunar- og þróunarsjóða.

Frá Eygló Harðardóttur.



     1.      Hversu margir og háir hafa styrkir úr nýsköpunar- og þróunarsjóðum iðnaðarráðuneytisins verið síðasta áratuginn og hvernig hafa þeir skipst milli karla og kvenna?
     2.      Hvernig hefur jafnréttis verið gætt við úthlutun styrkjanna?
    Svar óskast sundurliðað eftir sjóðum og árum.


Skriflegt svar óskast.