Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 529. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 864  —  529. mál.




Fyrirspurn



til velferðarráðherra um tóbaksnotkun.

Frá Siv Friðleifsdóttur.



     1.      Hvernig hefur þróast hér á landi síðustu sjö árin:
                  a.      notkun munntóbaks,
                  b.      notkun neftóbaks,
                  c.      reykingar?
     2.      Hvaða hópar nota helst þessi ávanabindandi nikótínefni, sundurgreint á sama hátt?
     3.      Hverjar eru helstu aðgerðir stjórnvalda til að draga úr notkun þessara efna, sundurgreint á sama hátt?
     4.      Hve mikið fækkaði hjartaáföllum í kjölfar banns við reykingum á veitinga- og skemmtistöðum?


Skriflegt svar óskast.