Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 484. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 878 — 484. mál.
umhverfisráðherra við fyrirspurn Vidgísar Hauksdóttur um Miðgötu í Bæjarstaðaskógi.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hefur ráðuneytið einhver áform um framkvæmdir við svokallaða Miðgötu í Bæjarstaðaskógi í Morsárdal í því átaki sem er boðað við gerð göngustíga innan þjóðgarða?
Umhverfisráðuneytið sér ekki um eða hefur frumkvæði að framkvæmdum við göngustíga, heldur er skipulagning og framkvæmdir við göngustígagerð í höndum stofnana ráðuneytisins sem hafa umsjón með friðlýstum svæðum, Umhverfisstofnun og Vatnajökulsþjóðgarði. Umhverfisráðuneytið óskaði eftir upplýsingum frá Vatnajökulsþjóðgarði um áform um framkvæmdir á svokallaðri Miðgötu og er svarið byggt á þeim upplýsingum.
Miðgata liggur um Skaftafellsheiði vestanverða í u.þ.b. 200 m h.y.s. frá bænum í Hæðum, um Forviðarbrekku og vestur úr og var nýtt í tengslum við sauðfjárbúskap fyrr á tímum. Gatan er víða að gróa upp og þyrfti að ryðja burt trjágróðri, en þar eru tré nokkuð hávaxin, til að gera hana aðgengilega. Allar gönguleiðir í þjóðgarðinum voru að miklu leyti skipulagðar eða ákvarðaðar af fyrrum bónda og þjóðgarðsverði Ragnari Stefánssyni, en Miðgata er ekki meðal þeirra leiða sem merktar hafa verið í bæklingi eða á kortum þjóðgarðsins. Það er mat sérfræðinga þjóðgarðsins að þar sem Miðgata liggur um viðkvæmt svæði með þykkum jarðvegi og moldarbörðum og opnum moldarflögum mundi göngustígagerð auka hættu á rofi. Þar sem jarðvegsþekja er rofin við aðstæður sem þessar, svo sem með göngustíg, eykst möguleiki á rofi af völdum rigningar og frostverkana. Einnig gæti það aukið hættu á jarðskriði á sumum stöðum. Til að fyrirbyggja jarðvegs- og gróðurskemmdir sem þessar þyrfti að leggja í kostnaðarsamar lagfæringar á leiðinni, t.d. með mikilli vinnu við pallasmíð.
Fjöldi gesta í Skaftafelli er mikill og því mikið álag á göngustígum þar. Starfsmenn Vatnajökulsþjóðgarðs leggja mikla og vandaða vinnu við að skipuleggja og ákvarða gönguleiðir og þurfa að taka tillit til staðhátta og fjölda gesta. Meðal þess sem horft er til við ákvörðun og skipulag er að gönguleiðakerfið endurspegli fjölbreytileika landsins, að leiðirnar geti annað fjölda göngumanna án þess að náttúran beri skaða af og að nýjar gönguleiðir bæti við upplifun gesta, hvort heldur er útsýni, náttúru- eða menningarminjar, miðað við þær leiðir sem til staðar eru. Á hverju ári er mikil vinna við viðhald göngustíga í Skaftafelli en brýnt er að halda þeim sómasamlega við. Fyrirliggjandi eru aðkallandi lagfæringar á göngustígum á Skaftafellsheiði og ekki talið tímabært að fara í lagningu nýrra stíga, eins og Miðgötu, sem ekki koma til með að bæta við þá upplifun ferðamanna sem nú er til staðar í skipulögðum gönguleiðum í Skaftafelli að mati starfsmanns þjóðgarðsins.
Í Skaftafelli eru uppi áform um að bæta tveimur gönguleiðum við núverandi stígakerfi en það eru göngustígar sem áður hafa verið opnir en loka þurfti m.a. vegna gróðurskemmda. Annars vegar er um að ræða göngustíg sem liggur um Miðheiði frá Skerhól að Sjónarnípu og hins vegar er um að ræða svokallaða Neðstugötu.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 878 — 484. mál.
Svar