Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 161. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 879  —  161. mál.




Svar



innanríkisráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur um presta á launaskrá hjá Biskupsstofu.

     1.      Hvað eru margir prestar á launaskrá hjá Biskupsstofu?
    138 prestar eru á launaskrá hjá biskupi Íslands.

     2.      Hvað eru margir prestar starfandi þar sem bíða þess að komast á eftirlaun og hve margir hafa mætingarskyldu og fasta stöðu við embættið?
    
Tveir prestar fara á eftirlaun á þessu ári. Prestar skipuleggja vinnutíma sinn sjálfir og þar með talið fasta viðveru í sínu prestakalli. Aðeins einn sóknarprestur hefur fasta viðveruskyldu á Biskupsstofu en það er sóknarprestur í Þingvallaprestakalli, sem er jafnframt verkefnastjóri á helgihalds- og tónlistarsviði Biskupsstofu. Á Biskupsstofu vinna einnig fleiri prestar en þeir sinna ekki prestsþjónustu. Þeir hafa mætingarskyldu eins og aðrir fastir starfsmenn.

     3.      Hvað eru margir prestar skráðir í sérverkefni hjá Biskupsstofu og hver eru sérverkefnin sem þeir sinna?
    
Tveir sérþjónustuprestar sinna verkefnum á Biskupsstofu. Annar þeirra sinnir eftirfarandi verkefnum í þágu Helgisiðastofu: þýðingarverkefnum og staðfærslu predikunarleiðbeininga fyrir presta. Hinn sinnir m.a. rannsóknum á keltneskri kristni og menningu, verkefnum á vegum helgisiðanefndar sem tengjast endurskoðun handbókar og sálmabókar, helgihaldi á Þingvöllum ásamt sóknarpresti, ritstörfum tengdum vef kirkjunnar og starfsþjálfun guðfræðinema, auk þess sem hann messar og predikar í forföllum og sinnir öðrum verkefnum samkvæmt ákvörðun biskups.

     4.      Hver er aldur þessara presta?
    Annar er fæddur árið 1944 en hinn árið 1948.

     5.      Hver er launakostnaður Biskupsstofu vegna presta sem hafa ekki fast brauð en eru þó á launaskrá á ársgrundvelli?
    
Laun og launatengd gjöld prests eru um 8 millj. kr. á ári. Gert er ráð fyrir að hér sé verið að vísa til starfa sérþjónustuprestanna tveggja við Biskupsstofu en ekki annarra prestvígðra starfsmanna. Áætlaður launakostnaður þeirra er því um 16 millj. kr.