Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 489. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 920 — 489. mál.
forsætisráðherra við fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur um aðstoðarmenn ráðherra ríkisstjórnarinnar, fjölmiðlafulltrúa og tímabundnar ráðningar í Stjórnarráðinu.
Forsætisráðuneytið hefur tekið saman heildarsvar við fyrirspurninni sem byggist á upplýsingum frá hverju ráðuneyti fyrir sig. Þær upplýsingar eru á ábyrgð viðkomandi ráðherra. Óski fyrirspyrjandi eða aðrir alþingismenn eftir frekari eða ítarlegri upplýsingum en fram koma í upplýsingum frá einstökum ráðuneytum, er rétt að athugasemdum og/eða nýrri fyrirspurn sé beint til viðkomandi ráðherra.
Svör við eftirfarandi spurningum afmarkast við upplýsingar um þá starfsmenn sem eru ráðnir og á launaskrá í Stjórnarráðinu
1. Hversu margir eru aðstoðarmenn ráðherra ríkisstjórnarinnar?
Aðstoðarmenn ráðherra í skilningi 15. gr. laga um Stjórnarráð Íslands, nr. 73/1969, eru tíu talsins, einn hjá hverjum ráðherra.
2. Hversu margir eru fjölmiðlafulltrúar hvers ráðuneytis?
Fjölmiðlafulltrúar starfa hjá sjö ráðuneytum. Hjá utanríkisráðuneyti, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti, velferðarráðuneyti, fjármálaráðuneyti, iðnaðarráðuneyti og umhverfisráðuneyti starfar einn fjölmiðlafulltrúi í hverju ráðuneyti, í innanríkisráðuneyti starfa tveir fjölmiðlafulltrúar.
3. Hversu margir starfsmenn hvers ráðuneytis eru ráðnir tímabundið og hver eru verkefni þeirra? Var viðkomandi starf auglýst og hvenær var ráðið í viðkomandi stöður?
Upplýsingar er að finna í meðfylgjandi yfirliti yfir þá starfsmenn sem ráðnir hafa verið tímabundið og eru á launaskrá viðkomandi ráðuneyta, auk tímabils ráðningar viðkomandi. Einnig kemur fram í yfirlitinu hvort staða hefur verið auglýst og ástæður tímabundinnar ráðningar með vísan til reglna nr. 464/1996 sem settar eru á grundvelli starfsmannalaga, nr. 70/1996.
Ekki eru tilteknir þeir sem hafa verið endurskipaðir eða fluttir til í starfi samkvæmt ákvæðum starfsmannalaga, nr. 70/1996, enda hafi þeir áður verið skipaðir til starfa í Stjórnarráðinu á grundvelli auglýsingar.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 920 — 489. mál.
Svar

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.