Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 550. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 937  —  550. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um uppsagnir ríkisstarfsmanna.

Frá Sigmundi Erni Rúnarssyni.



     1.      Hvað hefur mörgum ríkisstarfsmönnum verið sagt upp störfum frá ársbyrjun 2009 til ársloka 2010 vegna aðhaldsaðgerða í ríkisfjármálum?
     2.      Hvernig hafa þessar uppsagnir skipst á milli kynja?
     3.      Hvernig hafa þessar uppsagnir skipst á milli kjördæma?
     4.      Hvernig hafa þessar uppsagnir skipst á milli starfsgreina (skólar, heilbrigðisstofnanir o.s.frv.)?
     5.      Hvað hefur mörgum starfsmönnum verið sagt upp í stjórnsýslunni (í ráðuneytum)?