Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 558. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 946  —  558. mál.




Frumvarp til laga



um skattaívilnanir í þágu tilgreindra félagasamtaka.

Flm.: Eygló Harðardóttir, Birkir Jón Jónsson og Siv Friðleifsdóttir.



I. KAFLI
Breyting á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum.
1. gr.

    Við A-lið 30. gr. laganna bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Einstakar gjafir til kirkjufélaga, viðurkenndrar líknarstarfsemi, menningarmála og vísindalegra rannsóknarstarfa enda sé gjöfin ekki undir 50.000 kr. Fjármálaráðherra ákveður með reglugerð hvaða málaflokkar og stofnanir falla undir þennan tölulið.

II. KAFLI
Breyting á lögum nr. 14/2004, um erfðafjárskatt, með síðari breytingum.
2. gr.

    Við 1. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Ekki skal greiða erfðafjárskatt af arfi, gjafaarfi, dánargjöfum, fyrirframgreiddum arfi og gjöfum til kirkjufélaga, viðurkenndrar líknarstarfsemi, menningarmála og vísindalegra rannsóknarstarfa. Fjármálaráðherra ákveður með reglugerð hvaða málaflokkar og stofnanir falla undir þennan tölulið.

3. gr.

    Lögin öðlast þegar gildi. 1. gr. kemur til framkvæmda við álagningu árið 2012 vegna tekjuársins 2011. 2. gr. gildir um skipti á dánarbúum þeirra sem andast 1. janúar 2011 eða síðar.

Greinargerð.


    Með frumvarpi þessu eru lagðar til skattaívilnanir sem hugsaðar eru í þágu frjálsra félagasamtaka á sviði menningarmála, vísindalegra rannsóknarstarfa, viðurkenndrar líknarstarfsemi og kirkjufélaga. Er lagt til að einstaklingi verði heimilt að draga gjafir til slíkra félagasamtaka frá skatti. Einnig er lagt til að slíkum samtökum verði ekki gert að greiða erfðafjárskatt af arfi, gjafaarfi, dánargjöfum og fyrirframgreiddum arfi sem þeim áskotnast.
    Frjáls félagasamtök sinna fræðslu almennings, efla menningar- og listalíf, inna af hendi margs konar samfélagsþjónustu og halda á lofti málstað einstakra þjóðfélagshópa. Félagasamtök eru jafnfjölbreytt og þau eru mörg, en sem dæmi um frjáls félagasamtök sem snerta líf flestra Íslendinga má nefna Landsbjörg, Heimili og skóla, Kvenfélagasamband Íslands og Rauða kross Íslands.
    Á grundvelli þess mikilvæga samfélagslega hlutverks sem frjáls félagasamtök gegna hafa þau lengi fengið ýmsar undanþágur frá skattgreiðslum, sérstaklega frá greiðslu tekjuskatts og eignarskatts, enda má gera ráð fyrir að opinberir aðilar þyrftu sjálfir að sinna verkefnum þeirra ef félagasamtökin gerðu það ekki.
    Íslensk félagasamtök njóta þó ekki sömu skattaívilnana og algengt er í samanburðarlöndunum, t.d. undanþágu frá greiðslu fjármagnstekjuskatts, erfðafjárskatts og endurgreiðslu virðisaukaskatts af aðföngum. Stærsti munurinn felst þó í því að einstaklingum hér á landi er ekki leyfilegt að draga gjafir til góðgerðafélaga frá skattskyldum tekjum sínum líkt og almennt er heimilt í löndum Evrópu og Norður-Ameríku. Einnig hafa frjáls félagasamtök greitt fullan erfðafjárskatt af dánargjöfum sem þeim hefur verið ánafnað.
    Á undanförnum áratugum hafa skattaívilnanir stjórnvalda fyrst og fremst beinst að fyrirtækjum sem eru á markaði í hagnaðarskyni. Sífellt hefur hallað á starfsemi sem rekin er á grundvelli ákveðinna hugsjóna, svo sem frjáls félagasamtök og samvinnufélög. Má þar nefna afnám ákvæða um frádrátt frá skattskyldum tekjum einstaklinga vegna gjafa til góðgerðafélaga árið 1979, ákvörðun um að félagasamtök skyldu greiða fjármagnstekjuskatt árið 1996 og álagning erfðafjárskatts á gjafir til líknarfélaga vorið 2004.
    Flutningsmenn telja ekki rétt skilaboð til samfélagsins að hagkvæmara sé að græða sjálfur en að gefa náunganum, að auðdýrkun og fésýsla sé metið meira en vinnan, þekkingin og framtakið og maðurinn sjálfur. Frjáls félagasamtök hafa ekki farið varhluta af kreppunni. Framlög frá fyrirtækjum og einstaklingum hafa dregist saman, auk þess sem hið opinbera hefur minna getað stutt við starfsemi þeirra með beinum styrkjum. Á sama tíma hefur álag og eftirspurn eftir þjónustu frjálsra félagasamtaka aukist.
    Með breyttum skattareglum, sérstaklega hvað varðar góðgerða- og líknarfélög, er hægt að bæta starfsumhverfi frjálsra félagasamtaka umtalsvert. Starfsemin efldist og þau yrðu betur í stakk búin að hlaupa undir bagga með ríki og sveitarfélögum við þessar erfiðu efnahagsaðstæður.