Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 509. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 993  —  509. mál.




Svar



iðnaðarráðherra við fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur um kynjahlutfall styrkþega nýsköpunar- og þróunarsjóða.

     1.      Hversu margir og háir hafa styrkir úr nýsköpunar- og þróunarsjóðum iðnaðarráðuneytisins verið síðasta áratuginn og hvernig hafa þeir skipst milli karla og kvenna?

    Hjá iðnaðarráðuneyti eru tveir nýsköpunar- og þróunarsjóðir, Tækniþróunarsjóður og Átak til atvinnusköpunar.
    Til Tækniþróunarsjóðs var stofnað árið 2004 með lögum nr. 4/2003. Búið er að veita 377 styrki úr sjóðnum á árunum 2004–2010 og er heildarupphæð þeirra 3.613.223 þús. kr. Styrkirnir eru allt frá forverkefnisstyrkjum til eins árs til verkefnisstyrkja til þriggja ára. Hámarksstyrkur getur orðið 30 millj. kr. á þremur árum en undantekning var gerð vorið 2009 með öndvegisstyrkjum sem voru boðnir í það eina skipti. Hlutur kvenna á tímabilinu í úthlutun nýrra styrkja er 20% og er þá miðað við að verkefnisstjóri sé kona. Á sama tíma bárust 1.085 umsóknir og þar var hlutfall kvenna sem verkefnisstjóra 18%. Sjá nánar skiptingu milli ára í meðfylgjandi töflu. Meðalupphæð styrkja ásamt framhaldsstyrkjum allt tímabilið er 10 millj. kr. þar sem karl er verkefnisstjóri en 7,8 millj. kr. þar sem verkefnisstjóri er kona.
    

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Átak til atvinnusköpunar er einn af fjárlagaliðum iðnaðarráðuneytis. Sérstök stjórn skipuð af iðnaðarráðherra gerir tillögur um úthlutun styrkja úr sjóðnum. Veittir hafa verið 720 styrkir úr sjóðnum á árunum 2000–2010 og er heildarupphæð þeirra 638.105 þús. kr. Hlutur kvenna í úthlutun styrkja á tímabilinu er 23%. Það sem skilgreint er sem ókynjað í eftirfarandi töflu eru fyrirtæki þar sem eignarhald er blandað, og/eða um stærri samtök er að ræða sem á engan hátt er hægt að kyngreina. Á tímabilinu bárust 2.641 umsókn og þar var hlutfall kvenna sem umsækjenda 26%. Sjá nánari skiptingu í meðfylgjandi töflu. Meðalupphæð styrkja allt tímabilið er 698 þús. kr. til kvenkyns styrkþega og 852 þús. til karla.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


     2.      Hvernig hefur jafnréttis verið gætt við úthlutun styrkjanna?

    Við úthlutun styrkja úr Tækniþróunarsjóði og Átaki til atvinnusköpunar er farið eftir úthlutunarreglum sjóðanna sem tryggja eiga faglegt mat á verkefnum. Ekki er sérstaklega gætt að kyni umsækjenda.
    Iðnaðarráðuneytið vinnur að úttekt á umsóknum í sjóði, sem starfa á þess vegum, út frá kyngreindum tölulegum upplýsingum. Er þetta verkefni unnið í samstarfi við verkefnastjórn um mótun stefnu og undirbúnings kynjaðrar fjárlagagerðar. Lagt verður mat á hvernig starfsemi sjóðanna nýtist hvoru kyni og eftir atvikum hvort ástæða sé til að endurskoða úthlutunarreglur þegar meiri hluti styrkþega er af öðru kyninu.
    Í þessu skyni ritaði ráðuneytið sjóðunum bréf á síðasta ári þar sem verkefnið var kynnt og óskað eftir því að upplýsingum um kynjaskiptingu styrkþega verði kerfisbundið haldið til haga og þeim upplýsingum skilað til ráðuneytisins í lok hvers árs.