Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 582. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 995  —  582. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um gerð hlutlauss kynningarefnis vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave-samningana.

Flm.: Margrét Tryggvadóttir, Þór Saari, Eygló Harðardóttir,
Gunnar Bragi Sveinsson, Birgitta Jónsdóttir.


    Alþingi ályktar að fela innanríkisráðherra að láta útbúa hlutlaust kynningarefni vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave-samningana sem verður haldin 9. apríl nk.

Greinargerð.

    16. febrúar 2011 samþykkti meiri hluti Alþingis frumvarp fjármálaráðherra um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta til breska og hollenska ríkisins. Lögin, nr. 13/2011, veita fjármálaráðherra heimild til að staðfesta samninga sem áritaðir voru í London 8. desember 2010 um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta til breska og hollenska ríkisins á kostnaði af greiðslu lágmarkstryggingar til innstæðueigenda í útibúum Landsbanka Íslands hf. í Bretlandi og Hollandi og greiðslu eftirstöðva og vaxta af þeim skuldbindingum. Í kjölfarið synjaði forseti Íslands lögunum staðfestingar og vísaði þannig málinu til þjóðarinnar. Mun þjóðaratkvæðagreiðsla fara fram um lögin 9. apríl nk.
    Icesave-málið svokallaða hefur verið umdeilt og ýmsar skoðanir á lofti um heppilegasta niðurstöðu þess. Málið er flókið og erfitt er fyrir almenna borgara að átta sig á hvað felst í raun í synjun eða samþykki áðurnefndra laga. Mikill áróður hefur verið rekinn af ýmsum hagsmunaaðilum, stjórnsýslunni, stjórnmálaflokkum og einstaklingum og hlutleysi víkur oft fyrir eldmóði þeirra sem áróðurinn reka. Einn stjórnmálaflokkurinn býður meira að segja upp á námskeið til að undirbúa félagana fyrir rökræður um málið. Þá hafa borist fréttir af því að áhugi sé á því að kynningarefni verði tekið saman í fjármálaráðuneytinu en auglýsingastofa sjái um framsetninguna. Fjármálaráðuneytið hefur séð um samningagerð og getur því ekki undir neinum kringumstæðum talist óháður aðili. Nauðsynlegt er að sjá til þess að jafnræði ríki á milli ólíkra sjónarmiða og tryggt sé að sjónarmið bæði með staðfestingu laganna og á móti staðfestingunni hljóti sanngjarna umfjöllun.
    Víða um heim er rík hefð fyrir þjóðaratkvæðagreiðslum og hafa leiðir verið fundnar til þess að útbúa óháð kynningarefni sem sátt ríkir um. Í Sviss er til að mynda öllum kjósendum sendur upplýsingapakki fyrir hverja atkvæðagreiðslu um þau mál sem greiða á atkvæði um. Opinber kynningarbæklingur er hlutlaus og óháður og unninn af opinberri stofnun sem sérhæfir sig í slíku. Hvert stjórnmálaafl má einnig gefa út bækling með sínum sjónarmiðum sem fylgir með hinu opinbera kynningarefni en hömlur eru settar á aðra kynningu flokkanna. Sem dæmi má nefna að pólitískar auglýsingar eru bannaðar í ljósvakamiðlum og hinu opinbera er bannað að halda fram einu sjónarmiði en skylt að útvega kjósendum hlutlausar og áreiðanlegar upplýsingar.
    Hér á landi er ekki mikil hefð fyrir þjóðaratkvæðagreiðslum. Sú fyrsta í lýðveldissögunni var haldin á síðasta ári um sama mál en þó aðra samninga. Þá var gefið út opinbert kynningarrit sem sent var inn á öll heimili landsins og var það unnið af Lagastofnun Háskóla Íslands en dómsmála- og mannréttindaráðuneytið stóð að gerð þess eftir ábendingar frá Alþingi. Frá þeim tíma er fyrsta þjóðaratkvæðagreiðslan fór fram hefur Alþingi sett lög um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna (lög nr. 91/2010). Í 6. gr. þeirra segir að ef þjóðaratkvæðagreiðsla þurfi að fara fram á grundvelli 26. gr. stjórnarskrárinnar skuli ráðuneyti svo fljótt sem verða má og eigi síðar en viku fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna senda öllum heimilum á landinu sérprentun laganna sem forseti synjaði staðfestingar. Þar skuli jafnframt vakin athygli á því að frumvarpið til laganna og öll skjöl varðandi meðferð þess séu aðgengileg á áberandi stað á vefsíðu Alþingis. Það er mat flutningsmanna þingsályktunar þessarar að slík upplýsingagjöf sé ekki nægileg, sérstaklega í tilfelli Icesave-samninganna, sem eru afar flóknir. Því sé eðlilegt að innanríkisráðherra fái fagaðila til að útbúa hlutlaust kynningarefni til dreifingar á öll heimili í landinu. Í 6. gr. laganna um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna er einnig fjallað um kynningarmál ef Alþingi ákveður að fara skuli fram þjóðaratkvæðagreiðsla um tiltekið málefni eða frumvarp. Er þá í lögunum gerð krafa um víðtæka kynningu af hálfu Alþingis. Eðlilegt væri að sambærilegar kröfur væru gerðar til kynningar á lögum sem forseti hefur synjað staðfestingar.
    Á meðan frumvarpið sem nú verða greidd atkvæði um var til umfjöllunar á Alþingi höfðu þingmenn úr öllum stjórnmálaöflum jöfn tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum að í umræðunni. Það tækifæri er liðið hjá og nú er það þjóðarinnar að taka ákvörðun en hún verður að geta treyst því að þær upplýsingar sem hún fær séu hlutlausar og áreiðanlegar. Ef stjórnvöld geta notað opinbert fé til kynningar á sínum málstað skekkir það stöðuna og getur haft áhrif á niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar.