Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 586. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Prentað upp.

Þskj. 1003  —  586. mál.
Skriflegt svar.




Fyrirspurn



til efnahags- og viðskiptaráðherra um kaupauka- og starfslokagreiðslur fjármálafyrirtækja.

Frá Eygló Harðardóttur.



     1.      Hefur Fjármálaeftirlitið sett reglur um kaupauka- og starfslokagreiðslur fjármálafyrirtækja í samræmi við breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 75/2010?
     2.      Ef svo er, hvernig eru þær reglur?
     3.      Ef svo er ekki, hver er ástæða þess að reglur hafa ekki verið settar?


Skriflegt svar óskast.