Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 590. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1008 — 590. mál.
til fjármálaráðherra um eiginfjárframlög ríkisins til nýju bankanna.
1. Hvers vegna fékk Fjársýsla ríkisins ekki viðhlítandi lánaskjöl sem lúta að lánveitingum ríkisins til nýju bankanna eins og getið er á bls. 12 í skýrslu Ríkisendurskoðunar til Alþingis um endurskoðun ríkisreiknings árið 2009?
2. Hvenær voru þessi viðskipti bókuð?
3. Eru þessi skjöl ekki til?
4. Fengu bankarnir lán án þess að árita lánaskjöl?
5. Hvenær voru ríkisskuldabréf að fjárhæð 186,5 milljarðar kr. vegna fjármögnunar bankanna gefin út og bókuð í lánakerfi ríkisins?
6. Voru þeir eignarhlutir sem koma fram í töflu 2.1 í skýrslu Ríkisendurskoðunar seldir með söluhagnaði eða sölutapi?
7. Hvernig skiptist hagnaður eða tap á þessa þrjá eignarhluti?
Skriflegt svar óskast.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1008 — 590. mál.
Fyrirspurn
til fjármálaráðherra um eiginfjárframlög ríkisins til nýju bankanna.
Frá Kristjáni Þór Júlíussyni.