Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 597. máls.
til velferðarráðherra um framkvæmd heilsustefnu, eflingu forvarna o.fl.
Hvernig hefur gengið að ná fram eftirtöldum markmiðum sem eru sett fram í heilsustefnu ráðuneytisins frá 2008 og átti að ná fyrir lok árs 2009:
a. að funda með 50% heilsusgæslustöðva og sveitarfélaga á landinu til að efla forvarnir og heilsueflingu í heilsugæslu og sveitarfélögum landsins,
b. að fræða 25% heilsugæslustöðva um geðheilbrigði og geðrækt til að efla þekkingu á meðal heilbrigðisstarfsmanna í heilsugæslunni,
c. að auka færni fagfólks á fyrstu stigum heilbrigðisþjónustu til að styðja foreldra í uppeldishlutverkinu með því að tryggja að allar heilsugæslustöðvar hafi fengið námskeið og ráðgjöf varðandi jákvætt uppeldi,
d. að tryggja að uppeldisfræðsla verði orðin hluti af almennri heilsuvernd barna,
e. að safna fjórum milljónum króna til aðstoðar þeim sem minnst mega sín í þjóðfélaginu,
f. að Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins verði byrjuð að nota ávísun á hreyfingu?
139. löggjafarþing 2010–2011.
Prentað upp.
Þskj. 1016 — 597. mál.
Breyttur texti.
Fyrirspurn
til velferðarráðherra um framkvæmd heilsustefnu, eflingu forvarna o.fl.
Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.