Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 612. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1036 — 612. mál.
til velferðarráðherra um bólusetningar ungbarna gegn pneumókokkum.
1. Hvenær má vænta þess að hafnar verði bólusetningar ungbarna gegn pneumókokkum, sem m.a. valda eyrnabólgum?
2. Stendur til að bólusetja öll börn þriggja ára og yngri gegn pneumókokkasýkingum til að ná fyrr fram svokölluðum jákvæðum hjarðáhrifum og til að gæta jafnræðis meðal ungbarna, en nú þegar óska margir foreldrar eftir bólusetningunni á eigin kostnað? Ef svo er ekki, hvers vegna?
3. Hefur verið reiknað út hve hagkvæm slík hjarðáhrif gætu verið?
4. Telur ráðherra að flýta þurfi bólusetningunni vegna aðstæðna hér á landi, svo sem alvarlegs sýklalyfjaónæmis sem einkum er á höfuðborgarsvæðinu?
5. Hve mörgum börnum hefur á liðnu ári þurft að gefa stærstu skammta breiðvirkra sýklalyfja sem völ er á í inntökuformi og hve mörg börn hafa verið lögð inn á spítala til sýklalyfjameðferðar í æð eða vöðva með sterkustu lyfjum sem völ er á til meðferðar á slæmum eyrnabólgum þar sem önnur lyf hafa ekki virkað?
6. Telur ráðherra að mikil notkun sýklalyfja við eyrnabólgum ungbarna á Íslandi tengist verklagi í heilsugæslunni og miklu álagi á vaktþjónustuna og barnalæknavaktina vegna undirmönnunar lækna í heilsugæslunni?
7. Verður haft samráð við heilsugæsluna við undirbúning bólusetninganna og verður hafið kynningar- og fræðsluátak fyrir lækna og foreldra um skynsamlega og markvissa notkun sýklalyfja samfara góðu hjarðónæmi barna gegn pneumókokkum þegar bólusetningarnar hefjast?
Skriflegt svar óskast.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1036 — 612. mál.
Fyrirspurn
til velferðarráðherra um bólusetningar ungbarna gegn pneumókokkum.
Frá Siv Friðleifsdóttur.