Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 143. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1080 — 143. mál.
velferðarráðherra við fyrirspurn Gunnars Braga Sveinssonar um sparnað ríkisins af boðuðum niðurskurði á heilbrigðisstofnunum samkvæmt frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2011.
Hversu mikill er nettósparnaður ríkisins af boðuðum niðurskurði fjárframlaga til heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni að teknu tilliti til:
a. greiðslu atvinnuleysisbóta til þeirra sem missa atvinnu vegna niðurskurðarins,
Í eftirfarandi töflu er reynt að nálgast svar við spurningunni með grófum hætti. Hún sýnir m.a. meðallaun starfshópa í heilbrigðiskerfinu á mánuði árið 2010 í samanburði við meðalfjárhæð bóta á hvern atvinnulausan einstakling fyrstu þrjá mánuði ársins 2011. Mismunurinn er nettósparnaður ríkisins af hverju stöðugildi þar sem vinna tapast að því gefnu að viðkomandi skrái sig án vinnu. Fjárhæðir eru án launatengdra gjalda. Til frekari fróðleiks eru dregnar fram upplýsingar um fjölda stöðugilda að jafnaði í hverri stétt árið 2010.
Í svari ráðherra við fyrirspurn Sigurðar Inga Jóhannssonar (þskj. 733, 447. mál) kemur fram að samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðisstofnunum reikna þær með að stöðugildum fækki um samtals 87 á árinu 2011 vegna samdráttar í útgjöldum. Það er um 1,3% af samanlögðum fjölda stöðugilda í töflunni. Ekki liggja fyrir upplýsingar um hvernig þessi 87 stöðugildi skiptast niður á starfsstéttir. Af töflunni má reikna út að ef ígildi 87 stöðugilda hjúkrunarfræðinga tapa vinnu yrði nettósparnaður ríkisins um 27.405 þús. kr. (87x315 þús. kr.) á mánuði að því gefnu að viðkomandi skrái sig atvinnulausan, ef hins vegar eingöngu sjúkraliðar missa vinnuna má gera ráð fyrir að sparnaðurinn á mánuði verði um 16.095 þús. kr. (87x185 þús. kr.) að því gefnu að viðkomandi skrái sig atvinnulausan. Samsvarandi upplýsingar um nettósparnað ríkisins má reikna úr töflunni fyrir hinar ýmsu starfsstéttir.
Til skýringar eru grunnbætur vegna atvinnuleysis nú um 150 þús. kr. á mánuði til þeirra sem hafa fullan bótarétt. Meðalgreiðslur á hvern einstakling eru lægri vegna þess að ekki eiga allir fullan bótarétt. Á fyrstu þremur mánuðum ársins 2011 var meðalupphæð greiddra grunnbóta 114.400 kr., sem er um 76% af fullum grunnbótum. Meðalupphæð greiddra tekjutengdra bóta var sömu mánuði 31.200 kr. Ef gengið er út frá þessum tölum má gera ráð fyrir að kostnaður Atvinnuleysistryggingasjóðs vegna þeirra sem sagt er upp sé um 155.800 kr. á hvern einstakling að viðbættum launatengdum gjöldum, að því gefnu að þeir skrái sig atvinnulausa. Nú getur verið að bótaprósenta þeirra sem missa vinnu hjá ríkinu sé hærri en 76%. Að því gefnu að hún liggi mitt á milli 76% og 100%, eða 88%, yrði kostnaður á hvern atvinnulausan einstakling á mánuði um 163.400 kr., sem jafngildir 174.800 með launatengdum gjöldum.
b. greiðslu biðlaunaréttinda til þeirra sem missa atvinnu vegna niðurskurðarins,
Ekki liggja fyrir upplýsingar um áætlaðar greiðslur vegna biðlauna á árinu 2011. Biðlaunaréttur er almennt sex eða tólf mánuðir. Þegar forstöðumenn gera rekstraráætlanir fyrir stofnanir sínar er greiðsla biðlauna hluti þess kostnaðar sem áætla þarf fyrir. Það verður því að taka tillit til hans við gerð rekstraráætlana og gæta þess að þær séu innan ramma fjárlaga. Gera verður því ráð fyrir að slíkur kostnaður verði ekki til að rýra þann sparnað sem ráðgerður er, en ráðuneytið hefur ekki upplýsingar um þann fjölda starfsmanna sem kann að eiga biðlaunarétt og er að missa eða hefur misst atvinnuna vegna niðurskurðarins.
c. aukins kostnaðar ríkisins við umsýslu við atvinnuleit og atvinnuleysisbætur vegna aukins atvinnuleysis sem af niðurskurðinum leiðir,
Fjárframlög til Vinnumálastofnunar eru ákveðin í fjárlögum, sem og útgjöld til úrræða atvinnuleitenda. Ekki er hægt að gera ráð fyrir auknum útgjöldum til slíkra mála þó svo að fjölgun verði í hópi atvinnulausra innan ákveðinna marka. Sá fjöldi sem missir vinnu vegna sparnaðar hjá ríkinu er ekki það mikill að líkur séu á viðbótarfjárframlögum ríkisins eða heimildum til ráðningar viðbótarstarfsmanna.
Rekstrarkostnaður Vinnumálastofnunar sem tengist atvinnuleitendum (frádregin eru rekstrarútgjöld vegna Ábyrgðasjóðs launa og Fæðingarorlofssjóðs) er um 874 millj. kr. á árinu 2011. Ef gert er ráð fyrir að um 14.000 manns séu að jafnaði á atvinnuleysisskrá á árinu þýðir það um 62 þús. kr. vegna hvers atvinnulauss einstaklings (sem er allt árið á skrá). Útgjöld til úrræða í fjárlögum eru 857 millj. kr., eða um 61 þús. kr. á hvern einstakling. Eins og að framan greinir er ekki hægt að gera ráð fyrir auknum útgjöldum vegna umsýslu eða úrræða þó að atvinnulausum fjölgi, heldur mundu þessi útgjöld deilast á fleiri, sem þýðir fyrst og fremst minni þjónustu við hvern og einn.
d. kostnaðar við tilflutning sjúkrarýma frá heilbrigðisstofnununum til Landspítala eða Sjúkrahússins á Akureyri,
Af hálfu heilbrigðisyfirvalda liggja ekki fyrir ákvarðanir um að flytja þjónustu af landsbyggðarsjúkrahúsum til Landspítala frekar en gert er ráð fyrir í gildandi fjárlögum og orðið er frá efnahagshruninu 2008. Þrátt fyrir samdrátt í útgjöldum í kjölfar hrunsins er grunnforsendan áfram sú að almennri sjúkrahúsþjónustu verði mætt innan hvers svæðis og ekki verði þörf á að sækja þjónustu utan heimahéraðs umfram það sem verið hefur. Með samdrætti í útgjöldum er verið að gera hagræðingarkröfu sem mæta skal með því að stytta legutíma, fækka innlögnum og hagræða með öðrum leiðum á sambærilegan hátt og þegar hefur verið gert á Landspítala og á Sjúkrahúsinu á Akureyri á undanförnum árum. Eftir sem áður verða fleiri sjúkrarúm ætluð til almennrar sjúkrahúsþjónustu (samkvæmt skilgreiningu 4. gr. laga nr. 40/2007) á landsbyggðinni, eða um 1,5 rými á hverja 1.000 íbúa, en á höfuðborgarsvæðinu þar sem er tæplega 1 rými á hverja 1.000 íbúa.
e.
kostnaðar við tilflutning sérfræðiþjónustu frá heilbrigðisstofnununum til Landspítala eða Sjúkrahússins á Akureyri,
Ekki er gert ráð fyrir slíkum tilflutningi, sbr. svar við d-lið.
f. kostnaðar við tilflutning endurhæfingar frá heilbrigðisstofnununum til Landspítala eða Sjúkrahússins á Akureyri,

g. kostnaðar við aukið sjúkraflug, akstur sjúkrabíla með sjúklinga og ferðir sjúklinga með áætlunarflugi og þyrluflugi víðs vegar af landsbyggðinni til Landspítala eða Sjúkrahússins á Akureyri,
Ekki er gert ráð fyrir að flutningar sem hér um ræðir aukist frekar en orðið er, sbr. svar við d-lið.
h. kostnaðar Sjúkratrygginga Íslands vegna aukinna ferða sjúklinga til Landspítala eða Sjúkrahússins á Akureyri sem óhjákvæmilega fylgja niðurskurðinum,
Ekki er gert ráð fyrir að flutningar þeir sem hér um ræðir aukist frekar en orðið er, sbr. svar við d-lið.
i. tekjutaps ríkisins vegna lægri skatttekna sem fylgja uppsögnum heilbrigðisstarfsfólks sem nú starfar á heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni,
Ráðuneytið býr ekki yfir þeim upplýsingum sem þarf til að svara spurningunni.
j. kostnaðar sem fylgir hækkunum ýmissa bóta, svo sem barnabóta, vaxtabóta o.s.frv., vegna þeirra sem lenda á atvinnuleysisskrá vegna niðurskurðarins,

k. kostnaðar við aukinn snjómokstur sem óhjákvæmilega hlýtur að fylgja þegar halda þarf fjallvegum opnum allan sólarhringinn, allt árið um kring, vegna aukinna sjúkraflutninga landleiðina á milli héraða?
Ekki er gert ráð fyrir að slíkir flutningar aukist að marki frá því sem verið hefur, sbr. svar við d-lið. Þá býr ráðuneytið ekki yfir upplýsingum um kostnað við snjómokstur á fjallvegum.
Að lokum er athygli þingmannsins vakin á því að Byggðastofnun hefur að beiðni fjárlaganefndar Alþingis tekið að sér að leggja mat á afleiðingar efnahagshrunsins, þ.m.t. áhrif niðurskurðar í heilbrigðiskerfinu á einstök landsvæði. Niðurstöður þeirrar vinnu kunna að skýra mál frekar.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1080 — 143. mál.
Svar

| Stéttir | Fjöldi stöðugilda 2010 | Meðallaun á mánuði á stöðugildi 2010 (þús. kr.) | Meðalbætur á mánuði apríl 2011 (þús. kr.) |
Nettósparnaður á mánuði á stöðugildi (þús. kr.) |
| Kjararáð | 26 | 752 | 163 | 588 |
| Læknar | 790 | 976 | 163 | 812 |
| Hjúkrunarfræðingar | 1.591 | 479 | 163 | 315 |
| Ljósmæður | 165 | 543 | 163 | 380 |
| Sjúkraliðar | 810 | 349 | 163 | 185 |
| Aðrar heilbrigðisstéttir | 650 | 447 | 163 | 283 |
| Aðrir háskólamenntaðir | 222 | 467 | 163 | 304 |
| Aðrar stéttir | 2.363 | 299 | 163 | 136 |
| Utan félaga | 26 | 1.130 | 163 | 967 |