Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 267. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1083  —  267. mál.




Svar



velferðarráðherra við fyrirspurn Kristjáns Þórs Júlíussonar um starfsmannahald og aðkeypta þjónustu hjá heilbrigðisráðuneytinu.

     1.      Hvaða breytingar hafa orðið á starfsmannahaldi í ráðuneytinu frá 1. janúar 2009 til 1. október 2010? Óskað er upplýsinga um stöðugildi, starfsheiti, kynjahlutfall, launakjör og heildarlaunagreiðslur.
    Á tímabilinu 1. janúar 2009 til 1. október 2010 hefur fjöldi stöðugilda hjá ráðuneytinu verið nokkuð svipaður eða á bilinu 50 til 53. Hér er miðað við fjölda starfsmanna sem voru á launaskrá hjá aðalskrifstofu ráðuneytisins, störfuðu erlendis á vegum ráðuneytisins og starfsmanna ráðuneytisins þar sem laun voru greidd af safnliðum en þeir starfsmenn voru fluttir á launaskrá hjá ráðuneytinu frá 1. janúar 2010. Á tímabilinu urðu eftirtaldar starfsmannabreytingar:
    Í febrúar 2009 fékk skrifstofustjóri í ráðuneytinu launalaust leyfi til að starfa hjá Sjúkratryggingum Íslands og 1. ágúst var settur skrifstofustjóri skipaður skrifstofustjóri en það var gert í framhaldi af auglýsingu um embættið. Skrifstofustjóri sem hafði verið í námsleyfi kom aftur til starfa í október, skipt var um fulltrúa ráðuneytisins í Brussel 1. október, sérfræðingur fékk launalaust leyfi í ár frá 1.október og annar starfsmaður fór til starfa í félags- og tryggingamálaráðuneytinu frá 1. nóvember en honum hafði verið boðið starf þar í samræmi við 2. mgr. 11. gr. laga nr. 73/1969, um Stjórnarráð Íslands. Þá var á árinu ráðinn lögfræðingur til starfa tímabundið vegna forfalla, samið var um lægra starfshlutfall við starfsmann sem fluttur hafði verið frá stofnun ráðuneytisins og tveir starfsmenn fóru í fæðingarorlof á árinu. Á árinu 2009 voru starfsmenn að jafnaði 51 til 52.
    Talsverðar mannabreytingar voru hjá heilbrigðisráðuneytinu á árinu 2010, aðallega þó á fyrri helmingi ársins. Tveir skrifstofustjórar hættu, annar í janúar og hinn í maí, einn starfsmaður ráðuneytisins var settur tímabundið sem forstjóri Lýðheilsustöðvar frá 1. janúar, annar hætti þar sem honum var boðið starf hjá félags- og tryggingamálaráðuneytinu frá 1. febrúar í samræmi við 2. mgr. 11. gr. laga nr. 73/1969, um Stjórnarráð Íslands, sá þriðji fór í sjö mánaða launalaust leyfi og starfsmaður sem vann fyrir ráðuneytið í Lúxemborg hætti og annar var ráðinn í staðinn. Þá fóru tveir starfsmenn í veikindaleyfi, annar í janúar og hinn í febrúar og var annar þeirra frá það sem eftir var ársins og hinn að mestu. Í stað þeirra sem hættu störfum hjá ráðuneytinu, fóru í leyfi eða veikindaleyfi voru ráðnir þrír sérfræðingar í febrúar þar af tveir tímabundið, tveir sérfræðingar voru ráðnir tímabundið í mars og í þeim mánuði var einnig ráðið tímabundið vegna fjarveru upplýsingafulltrúa og auk þess var ráðinn sérfræðingur í júní. Í apríl og maí voru tveir starfsmenn ráðnir tímabundið í sérstök verkefni. Um mitt ár var skipaður skrifstofustjóri fyrir annan þeirra skrifstofustjóra sem hættu á árinu. Um var að ræða starfsmann sem starfaði í Brussel fyrir ráðuneytið en ráðuneytið hefur ekki lengur fulltrúa þar. Aðrar starfmannabreytingar á árinu voru þær að í júlí fór matráður ráðuneytisins í launalaust leyfi og var ráðið tímabundið fyrir hann, sérfræðingur fór tímabundið til starfa í forsætisráðuneytinu og var ráðinn sérfræðingur tímabundið fyrir hann á meðan og 1. október fór ráðuneytisstjóri ráðuneytisins í námsleyfi og var skrifstofustjóri í ráðuneytinu settur ráðuneytisstjóri á meðan. Þeir starfsmenn sem fóru í fæðingarorlof á árinu 2009 komu til baka, annar í mars en hinn í september.
    Í lok ársins 2010 voru 53 starfsmenn í 51 stöðugildi hjá heilbrigðisráðuneytinu. Um var að ræða tvo ráðuneytisstjóra, níu skrifstofustjóra, 31 sérfræðing, umsjónarmann, matráð, þrjá stjórnarráðsfulltrúa, fjóra ritara og tvo móttökuritara. Kynjahlutfall starfsmanna var 36 konur og 17 karlar. Launakostnaður með launatengdum gjöldum fyrir tímabilið 1. janúar 2009 til og með september 2010 var samtals 706.382.520 kr.
     Í framhaldi af athugasemdum Ríkisendurskoðunar voru á fjárlögum ársins 2010 færðar til aðalskrifstofu ráðuneytisins 13,4 millj. kr. af lið 08-399 Heilbrigðismál, ýmis starfsemi, vegna launa sérfræðinga sem starfa hjá ráðuneytinu við uppbyggingu á sjúkraskrárkerfi og heilbrigðisupplýsingum, 11 millj. kr. af lið 08-379 Sjúkrahús,óskipt, vegna launa starfsmanns sem vinnur fyrir ráðuneytið að innkaupamálum og 7,8 millj. kr. af lið 08-500 Heilsugæslustöðvar, almennt, vegna launa starfsmanns sem vann við stefnumótun og verkefni á sviði geðheilbrigðismála. Launakostnaður þessara starfsmanna er meðtalinn í launafjárhæðinni sem tilgreind er hér að framan.

     2.      Hvernig hefur ráðuneytið útfært sparnaðartillögu ríkisstjórnarinnar í launagjöldum?

    Laun starfsmanna í ráðuneytinu voru lækkuð í samræmi við samþykkt ríkisstjórnarinnar frá 18. ágúst 2009 um sparnaðaraðgerðir. Lækkunin var frá 3% og náði til þeirra sem voru með heildarlaun yfir 400 þús. kr. og þeir sem voru með hærri launin lækkuðu hlutfallslega meira. Kerfislega var launalækkunin útfærð þannig að föstum yfirvinnutímum var fækkað en grunnlaun héldust óbreytt. Starfsmönnum var hverjum og einum tilkynnt á fundi um lækkunina og í framhaldi af fundinum afhent bréf með tilkynningu um breytingu, með þriggja mánaða fyrirvara eða samkvæmt ákvæðum kjarasamninga þar um. Áður en til þessara lækkana kom höfðu þeir fimm sérfræðingar sem hæst höfðu launin verið lækkaðir í launum og var launalækkunin framkvæmd með sambærilegum hætti og lýst er hér að framan. Þetta var gert jafnhliða ákvörðun kjararáðs um að lækka laun ráðuneytisstjóra og skrifstofustjóra hjá Stjórnarráðinu.

     3.      Hvaða sérfræðiþjónusta var keypt á tímabilinu 1. janúar 2009 til 1. október 2010 í hvaða tilgangi, greint eftir nöfnum verksala og fjárhæðum.
    Ráðuneytið hefur tekið saman eftirfarandi yfirlit yfir aðkeypta þjónustu á umræddu tímabili. Yfirlitið nær yfir fjárlagalið aðalskrifstofu ráðuneytisins og ýmissa verkefna á þess vegum sem gjaldfærð eru á öðrum fjárlagaliðum.

08-101 Heilbrigðisráðuneytið, aðalskrifstofa.
Upphæð kr. Verksali Vegna
Árið 2009:
3.010.790 Capacent hf. Sérfræðiþjónusta, sparnaðarverkefni
985.167 Rekstrarfélag stjórnarráðsins Viðhaldsgjöld
984.200 Háskólinn á Bifröst Skýrslugerð
705.387 Securitas hf. Öryggisþjónusta
455.975 JS þýðingar ehf. Þýðingaþjónusta
410.956 Skyggnir ehf. Upplýsingaþjónusta
400.890 HRM-rannsóknir og ráðgjöf Ráðningarþjónusta
363.000 S&G Ráðgjöf ehf. Sérfræðiráðgjöf
308.568 Landskerfi bókasafna Sérfræðiþjónusta
175.500 Talnakönnun hf. Ráðgjafaþjónusta
164.314 Skýrr ehf. Aðgangur að skrám
127.346 Opin kerfi ehf. Sérfræðiþjónusta
70.000 Guðný Þorsteinsdóttir Sérfræðiþjónusta
35.000 Andri Jón Heide Læknisþjónusta
32.400 Hildibrandur Bjarnason Leiðsögn
28.750 Mannvit hf. Verkfræðiþjónusta
28.594 InterCultural Íslands ehf. Túlkaþjónusta
28.160 Hugsmiðjan ehf. Vefþjónusta
27.010 Listasafn Íslands Sérfræðiþjónusta
25.000 Sveinn Magnússon Bólusetning
22.674 Kjaran ehf. Rekstrarþjónusta
18.575 Yates þýðingar slf. Þýðingarþjónusta
15.000 Inga Pétursdóttir Jessen Sérfræðiþjónusta
40.603 Ýmsir Ýmis þjónusta
8.463.859 Samtals 2009

Árið 2010:
2.170.235 Expectus ehf. Sérfræðiþjónusta
1.818.496 HRM-rannsóknir og ráðgjöf ehf. Ráðningarþjónusta
1.298.000 Líf og sál sálfræðistofa Sérfræðiþjónusta
1.091.912 Capacent hf. Sérfræðiþjónusta, sparnaðarverkefni
791.780 Athygli Almannatengslaþjónusta o.fl.
709.566 Landspítali Sérfræðiþjónusta, lán á starfsmanni
341.400 Þýðendur Eiðistorgi ehf. Þýðingarþjónusta
290.074 VSI öryggishönnun og ráðgjöf ehf. Sérfræðiþjónusta vegna rýmingaráætlunar
250.524 Landskerfi bókasafna Sérfræðiþjónusta
222.825 Securitas Öryggisþjónusta
207.359 Creditinfo Fjölmiðlavaktin ehf. Fjölmiðlavöktun o.fl.
160.000 Talent ráðningar Ráðningarþjónusta
148.700 Ferðaleiðir ehf. Akstursþjónusta
126.000 Guðbjörg Ragna Ragnarsdóttir Sálfræðiþjónusta
118.976 Ellen Margrét Ingvarsdóttir Þýðingarþjónusta
99.000 Jóhann Thoroddsen Sálfræðiþjónusta
91.129 Skýrr ehf. Kerfisþjónusta
87.820 Skýrslutæknifélag Íslands Þjónusta
81.976 Hugvit hf. Sérfræðiþjónusta
80.000 Gissur Páll Gissurarson Listamaður
50.000 Kynstur slf. Fyrirlestur
35.000 Þóra Einarsdóttir Listamaður
35.000 Gerrit Scuil Listamaður
31.100 Listasafn Íslands Sérfræðiþjónusta
30.000 Ólafur Víðir Björnsson Yfirlestur
25.000 Íris Lilliendahl Þýðingarþjónusta
25.000 Þekkingarmiðlun ehf. Fyrirlestur
24.725 Yates þýðingar slf. Þýðingarþjónusta
20.967 Samskiptamiðstöð heyrnarlausra Táknmálstúlkun
19.400 Opin kerfi Kerfisþjónusta
18.016 Ýmsir Ýmis þjónusta
15.200 Arkitektastofa Benjamíns Magn. ehf. Arkitektaþjónusta
13.700 Skyggnir ehf. upplýsingaþjónusta Upplýsingaþjónusta
9.638 Mannvit hf. Verkfæðiþjónusta
8.101 HugurAx ehf. Sérfræðiþjónusta
7.968 Ut vil ek ehf. Fyrirlestur
7.840 Hugsmiðjan ehf. Vefþjónusta
7.500 Hagstofa Íslands Sérfræðiþjónusta
10.569.927 Samtals janúar – september 2010     
08-379 Sjúkrahús, óskipt
Árið 2009:
1.875.000 Argyron ehf. Sérfræðiþjónusta
741.533 Lyfjagreiðslunefnd Sérfræðiþjónusta, endurgreidd laun
725.743 Skýrr ehf. Kerfisfræðiþjónusta
315.000 Jóhann Thoroddsen Sálfræðiþjónusta
261.000 Oddi Erlingsson Sálfræðiþjónusta
240.000 Anna Sigurbjörg Sigurðardóttir Sálfræðiþjónusta
174.200 Hannes Friðriksson Þjónusta arkitekts
62.800 Ríkiskaup Útboðsþjónusta
18.000 Margrét Arnljótsdóttir Sálfræðiþjónusta
4.413.276 Samtals 2009

Árið 2010:
90.000 Guðrún Árnadóttir Sálfræðiþjónusta
90.000 Samtals janúar – september 2010     
08-399 Heilbrigðismál, ýmis starfsemi
Viðfangsefni:14200 Kostnaður skv. lögum um farsóttir, sóttvarnir og ónæmi
Árið 2009:
377.861 Heilbrigðisstofnunin Akranesi Læknisþjónusta
28.289 Hjúkrunarheimilið Fellsenda Bólusetning
14.934 Apótek Ólafsvíkur ehf. Bólusetning
11.790 Jón Bjarni Þorsteinsson Bólusetning
432.874 Samtals 2009

Árið 2010:
225.037 Ríkiskaup Útboðsþjónusta
225.037 Samtals janúar – september 2010
Viðfangsefni: 14301 Viðbúnaður gegn farsóttum     
Árið 2009:
3.759.650 Læknavaktin Ráðgjafaþjónusta
3.056.400 eMR hugbúnaður ehf. Hugbúnaðarþjónusta
408.825 Ingi Steinn Ingason Hugbúnaðarþjónusta
210.600 Vigur Ráðgjöf ehf. Hugbúnaðarþjónusta
168.674 Mentor ehf. Sérfræðiþjónusta
96.135 Eskill ehf. Sérfræðiþjónusta
67.613 Securitas hf. Öryggisþjónusta
43.486 Matís ohf. Rannsóknarþjónusta
36.203 Landspítali Rannsóknarþjónusta
26.069 Skýrr ehf. Rekstrarþjónusta
20.000 Andrea Sompit Siengt Þýðingarþjónusta
20.000 Grazyna María Okunie Þýðingarþjónusta
20.000 Alevtina Ólöf Druzina Þýðingarþjónusta
7.933.655 Samtals 2009

Árið 2010:
10.049.616 Landspítali Rannsókn á inflúensu
335.800 Framkvæmdasýsla ríkisins Umsjónarþjónusta
219.500 Hildur Sólveig Ragnarsdóttir Læknisþjónusta, skoðun íbúa á gossvæðinu
216.000 eMR hugbúnaður ehf. Hugbúnaðarþjónusta
146.393
Sigrún Guðmundsdóttir Læknisþjónusta, skoðun íbúa á gossvæðinu
136.001 Securitas hf. Öryggisþjónusta
117.720 Össur Ingi Emilsson Læknisþjónusta, skoðun íbúa á gossvæðinu
84.245 Bryndís Benediktsdóttir Læknisþjónusta, skoðun íbúa á gossvæðinu
78.718 Ingi Steinn Ingason Hugbúnaðarþjónusta
45.000 Gunnar Sigmundsson Hönnunarþjónusta, bæklingur vegna inflúensu
34.560 Hrafnhildur J. Rafnsdóttir Læknisþjónusta, skoðun íbúa á gossvæðinu
11.463.553 Samtals janúar – september 2010     
Viðfangsefni: 14600 Matskerfi umönnunarþyngdar hjúkrunarrýma
Árið 2010:
35.399.435 Stiki ehf. Kerfisfræðiþjónusta
35.399.435 Samtals janúar – september 2010
Viðfangsefni: 19088 Nefnd um greiðsluþátttöku almennings í heilbrigðiskerfinu     
Árið 2009:
1.270.468 Framnes ehf. Kerfisfræðiþjónusta
821.700 Persónuvernd Vinna tilsjónarmanns Persónuverndar
27.216 Skýrr ehf. Kerfisfræðiþjónusta
2.119.384 Samtals 2009
Viðfangsefni: 19800 Ýmis framlög heilbrigðisráðuneytisins     
Árið 2009:
1.798.219 Vottun hf. Úttektarþjónusta
750.000 Andi ehf. Sérfræðiþjónusta
2.548.219 Samtals 2009
Viðfangsefni: 69100 Upplýsingatæknimál     
Árið 2009:
3.583.250 Framnes ehf. Kerfisfræðiþjónusta. Rafrænir lyfseðlar
2.600.000 Heilbrigðisstofnun Suðurlands Vegna rafrænnar sjúkraskrár
2.500.000 Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Vegna rafrænnar sjúkraskrár
1.829.379 Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Vegna þýðingar á heilsuhluta ECDL
67.068 Benedikt Benediktsson Kerfisfræðiþjónusta
10.579.697 Samtals 2009

Árið 2010:
8.231.463 eMR hugbúnaður ehf. Kerfisfræðiþjón. Mánaðargj. fyrir Heklu og tengda þjónustu.
Lyfseðlagátt
3.444.350 Framnes Kerfisfræðiþjónusta. Rafrænir lyfseðlar
11.675.813 Samtals janúar – september 2010
08-401 Öldrunarstofnanir, almennt
Árið 2009:
56.109.124 Stiki ehf. Kerfisfræðiþjónusta
275.200 Ríkiskaup Útboðsþjónusta
272.550 Lögmannstofa Þorsteins Einarssonar ehf. Lögfræðiþjónusta
56.656.874 Samtals 2009
08-500 Heilsugæslustöðvar, almennt
Árið 2009:
61.973.081 eMR hugbúnaður ehf. Kerfisfræðiþjónusta
4.395.692 Landspítali, geðsvið Vegna ráðgjafamiðstöðvar vegna fjármálaáfalla
3.835.970 Túlka- og þýðingarþjónustan ehf. Túlkaþjónusta
2.089.125 Kögun ehf. Hugbúnaðargerð
1.200.000 Geðhjálp Sálfræðiþjónusta
1.170.625 Samskiptamiðstöð heyrnarlausra Túlkaþjónusta
802.927 InterCultural Íslands ehf. Túlkaþjónusta
460.000 Ríkiskaup Úrvinnsla tilboða o.fl.
300.000 Þorgerður Ragnarsdóttir Sérfræðiþjónusta
10.759 Verkfræðistofa Norðurlands ehf. Sérfræðiþjónusta
76.238.179 Samtals 2009

Árið 2010:
38.775.664 eMR hugbúnaður ehf. Kerfisfræðiþjónusta
7.617.081 Salus ehf. Rannsóknarþjónusta
1.624.530 Túlka- og fræðsluþjónusta Alþjóðahúss Túlkaþjónusta
807.231 Samskiptamiðstöð heyrnarlausra Túlkaþjónusta
754.697 InterCultural Íslands ehf. Túlkaþjónusta
449.750 Túlka- og þýðingarþjónustan ehf. Túlkaþjónusta
285.300 Jafnréttishús ehf. Túlkaþjónusta
149.090 Stiki ehf. Kerfisfræðiþjónusta
6.426 Dóróthea Dagný Tómasdóttir Túlkaþjónusta
50.469.769 Samtals janúar – september 2010     


     4.      Kannaði ráðuneytið hvort unnt væri að leysa þessi sérfræðiverkefni innan ríkiskerfisins áður en þjónustan var keypt, ef svo er, til hvaða ríkisaðila var leitað í hverju tilfelli fyrir sig?
    Þegar ný úrlausnarefni og verkefni koma upp er ávallt reynt að leysa þau af sérfræðingum og starfsfólki ráðuneytisins. Flest þau verkefni sem koma upp eru á málefnasviði ráðuneytisins og því ekki sérfræðiþekking fyrir hendi í öðrum ráðuneytum. Ráðuneytið leitar þó oft til undirstofnana þegar vinna þarf ákveðin verkefni og má þar t.d. nefna að ráðuneytið hefur fengið starfsmenn lánaða tímabundið frá Landspítalanum vegna þessa. Oft þarf einnig að kaupa sérfræðiþjónustu utan ríkiskerfisins og geta verið ýmsar ástæður fyrir því. Má þar t.d. nefna að ákveðin sérfræðiþekking sé ekki fyrir hendi hjá ráðuneytinu, mikið álag sé á starfsfólki ráðuneytisins og því þörf á tímabundinni aðstoð eða að mál sé þess eðlis að tryggja þurfi aðkomu hlutlausra aðila t.d. við starfsmannaráðningar.