Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 423. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1092 — 423. mál.
fjármálaráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur um úrskurð Eftirlitsstofnunar EFTA um ríkisaðstoð við gagnaver í Reykjanesbæ.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvenær er að vænta úrskurðar Eftirlitsstofnunar EFTA um hvort í stuðningi við gagnaver í Reykjanesbæ, sbr. lög nr. 57/2010, um heimild til samninga um gagnaver í Reykjanesbæ, felist óeðlileg ríkisaðstoð?
Samkvæmt 62. gr. EES-samningsins, sbr. lög nr. 2/1993, skal Eftirlitsstofnun EFTA fylgjast með öllum áformum um að veita ríkisaðstoð eða breyta henni, með það í huga að þau samrýmist 61. gr. EES-samningsins. Samkvæmt bókun 3 við samninginn milli EFTA-ríkjanna um stofnun eftirlitsstofnunar og dómstóls ber aðildarríkjum að tilkynna stofnuninni um fyrirhugaða ríkisaðstoð og bíða samþykkis eftirlitsstofnunarinnar áður en aðstoðin er veitt.
Allar tilkynningar íslenskra stjórnvalda um fyrirhugaða ríkisaðstoð eru sendar á formlegan hátt í gegnum fjármálaráðuneytið og hefur ráðuneytið umsjón með gerð og meðhöndlun tilkynninganna, svo og þeim samskiptum sem eiga sér stað áður eða í kjölfarið á milli íslenskra stjórnvalda og eftirlitsstofnunarinnar þar til viðkomandi máli er lokað.
Eftirlitsstofnun EFTA var hinn 27. ágúst 2010 tilkynnt formlega um fyrirhugaða ríkisaðstoð í tengslum við gagnaver Verne í Reykjanesbæ, sbr. lög nr. 57/2010. Áður höfðu viðræður við stofnunina vegna hinna fyrirhuguðu ráðstafana staðið yfir síðan í desember 2009.
Með ákvörðun dags. 3. nóvember 2010, að lokinni forathugun á málinu, hóf eftirlitsstofnunin formlega rannsókn á þeim ráðstöfunum sem tilkynntar voru af stjórnvöldum í ágúst sama ár. Í ákvörðuninni var m.a. kveðið á um að íslensk stjórnvöld skyldu leggja fram allar þær upplýsingar og þau gögn sem nauðsynleg væru til þess að leggja mat á samrýmanleika ráðstafananna. Í kjölfarið komu stjórnvöld upplýsingum á framfæri um ráðstafanirnar, umfram það sem stofnuninni hafði þegar verið látið í té, og var það gert m.a. í samráði við forsvarsmenn fyrirtækisins.
Með opnun formlegrar rannsóknar, í samræmi við 4. mgr. 4. gr. II. hluta bókunar 3 við samning EFTA-ríkjanna um stofnun eftirlitsstofnunar og dómstóls, kallar stofnunin jafnframt eftir athugasemdum frá aðilum sem telja sig málið varða. Almennur frestur til þess að senda stofnuninni athugasemdir í máli Verne rann út hinn 28. febrúar 2011, líkt og m.a. kemur fram á vef stofnunarinnar, www.eftasurv.int.
Formlegri rannsókn ber að ljúka með ákvörðun, sbr. 7. gr. II. hluta bókunar 3. Á grundvelli þeirra upplýsinga sem borist hafa frá stjórnvöldum og eftir atvikum frá öðrum aðilum mun stofnunin meta hvort hinar fyrirhuguðu ráðstafanir samrýmist framkvæmd EES-samningsins. Verði niðurstaðan að svo sé mun stofnunin ákvarða að aðstoðin samrýmist framkvæmd samningsins („jákvæð ákvörðun“) en telji stofnunin að hin tilkynnta aðstoð samrýmist ekki framkvæmd EES-samningsins skal hún ákvarða að aðstoðin komi ekki til framkvæmda („neikvæð ákvörðun“). Fram kemur í 6. mgr. 7. gr. II. hluta bókunar 3 að Eftirlitsstofnun EFTA skuli leggja allt kapp á að taka ákvörðun innan 18 mánaða frá því að formleg rannsókn hefst.
Ekki er ljóst hvenær niðurstaða stofnunarinnar muni liggja fyrir en með vísan til þeirrar áherslu sem íslensk stjórnvöld hafa lagt á að meðferð málsins verði flýtt má vænta ákvörðunar á næstu mánuðum.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1092 — 423. mál.
Svar