Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 625. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1100  —  625. mál.




Fyrirspurn



til efnahags- og viðskiptaráðherra um fyrirgreiðslu og afskriftir viðskiptamanna bankanna.

Frá Eygló Harðardóttur.



     1.      Hvernig er tryggt að sambærilegir viðskiptamenn bankanna fái ekki ólíka fyrirgreiðslu og afskriftir?
     2.      Hvernig er háttað eftirliti með afskriftum viðskiptamanna í bankakerfinu?


Skriflegt svar óskast.