Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 465. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1107 — 465. mál.
fjármálaráðherra við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar um fjárhagslega áhættu ríkissjóðs og Seðlabanka Íslands vegna fyrirtækja á fjármálamarkaði.
Eftirfarandi svör taka mið af áhættu ríkissjóðs vegna fyrirtækja á fjármálamarkaði.
1. Hversu miklum fjármunum hefur ríkissjóður varið sem hlutafjárframlagi og stofnfé til íslenskra fjármálafyrirtækja, viðskiptabanka, sparisjóða og tryggingafélaga, frá október 2009 til loka árs 2010? Hvernig skiptist hlutafjárframlagið milli einstakra fyrirtækja?
Þá var á árinu 2009 tekin ákvörðun um að breyta hluta af þeim kröfum sem ríkissjóður yfirtók af Seðlabanka Íslands í lok árs 2008 í hlutafjárframlag hjá SAT eignarhaldsfélagi hf. að fjárhæð 11,6 milljarða kr. Þær kröfur sem ríkissjóður yfirtók af Seðlabanka Íslands voru í lok árs 2009 færðar aftur til Eignarhaldsfélags Seðlabanka Íslands og eru nú í umsýslu þess.
2. Hver er fjárhæð lána sem ríkissjóður hefur veitt fjármálafyrirtækjum frá október 2009 til loka árs 2010? Óskað er eftir því að sérstaklega verði tilgreint hvort um víkjandi lán sé að ræða eða ekki og hvernig ábyrgðir skiptast eftir fjármálafyrirtækjum.
3. Hefur ríkissjóður veitt ábyrgð á skuldbindingum fjármálastofnana (öðrum en innlánum) frá október 2009? Ef svo er, hvaða ábyrgðir hafa verið veittar og hver er fjárhæð þeirra?
Ríkissjóður hefur ekki veitt ábyrgð á skuldbindingum fjármálastofnana öðrum en innlánum frá október 2009.
4. Hefur ráðherra í hyggju að leggja fram hlutafé eða stofnfé í fjármálafyrirtæki á yfirstandandi ári? Hver er áætluð heildarfjárhæð og um hvaða fyrirtæki er að ræða?
Undirritaður hefur verið samningur á milli fjármálaráðherra og Landsbanka Íslands um yfirtöku og samruna Landsbankans við Spkef sparisjóð. Samningurinn tryggir að útgjöld ríkissjóðs vegna Spkef takmarkist við það sem á vantar að heildareignir sparisjóðsins svari til innstæðna, um 11,2 milljarða kr. Ríkissjóður mun þannig ekki leggja sjóðnum til nýtt eigið fé sem áætlað var um 8,2 milljarðar kr.
Í samkomulagi sem ríkissjóður hefur gert við kröfuhafa Byrs er gert ráð fyrir að ríkissjóður veiti allt að 5 milljarða kr. í víkjandi lán. Þá vinnur nefnd að endurskipulagningu á hlutverki Byggðastofnunar sem lánastofnunar.
5. Hefur ráðherra gert áætlun um hvernig hægt sé að losa þá fjármuni sem bundnir eru í fjármálafyrirtækjum? Ef svo er, í hverju eru þær áætlanir fólgnar?
Í lögum nr. 88/2009, um Bankasýslu ríkisins, segir í j-lið 4. gr. að verkefni Bankasýslunnar sé að undirbúa og vinna tillögur um sölu eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum. Bankasýslan hefur unnið að mótun tillagna að útfærslu á innlausnarrétti sparisjóðanna sem gerir ráð fyrir að allt að 60% af því stofnfé sem ríkið fær í sínar hendur geti sparisjóðirnir innleyst aftur á innlausnartímabili sem hefst eftir tvö ár og mun standa í tvö ár. Eftirstöðvum af stofnfé ríkisins verði haldið eftir og það selt með fyrirkomulagi sem tryggi markmið stjórnvalda um dreifða eignaraðild að fjármálafyrirtækjum, í tilviki sparisjóðanna að þeir eignuðust á ný traust bakland stofnfjáreigenda.
Hvað varðar meðferð og eftir atvikum sölu á eignarhlutum ríkisins í viðskiptabönkunum þremur þá hafa ekki verið mótaðar tillögur um slíkt enn sem komið er. Vinna að slíkri stefnumótun er hins vegar fram undan.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1107 — 465. mál.
Svar
fjármálaráðherra við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar um fjárhagslega áhættu ríkissjóðs og Seðlabanka Íslands vegna fyrirtækja á fjármálamarkaði.
Eftirfarandi svör taka mið af áhættu ríkissjóðs vegna fyrirtækja á fjármálamarkaði.
1. Hversu miklum fjármunum hefur ríkissjóður varið sem hlutafjárframlagi og stofnfé til íslenskra fjármálafyrirtækja, viðskiptabanka, sparisjóða og tryggingafélaga, frá október 2009 til loka árs 2010? Hvernig skiptist hlutafjárframlagið milli einstakra fyrirtækja?
| NBI hf. | 122.000.000.000 |
| Arion banki hf. | 9.862.060.000 |
| Íslandsbanki hf. | 6.332.329.432 |
| Bankar | 138.194.389.432 |
|
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu. |

| Byr | 900.000.000 |
| Sparisjóður Keflavíkur | 900.000.000 |
| Sparisjóður Vestmannaeyja | 555.000.000 |
| Sparisjóður Bolungarvíkur | 542.744.000 |
| Sparisjóður Svarfdæla | 381.961.000 |
| Sparisjóður Norðfjarðar | 150.000.000 |
| Sparisjóður Þórshafnar | 105.000.000 |
| Sparisjóðir | 3.534.705.000 |
|
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu. |
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu. |
| Byggðastofnun | 3.600.000.000 |
|
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu. |
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu. |
| Íbúðalánasjóður, allt að | 33.000.000.000 |
Þá var á árinu 2009 tekin ákvörðun um að breyta hluta af þeim kröfum sem ríkissjóður yfirtók af Seðlabanka Íslands í lok árs 2008 í hlutafjárframlag hjá SAT eignarhaldsfélagi hf. að fjárhæð 11,6 milljarða kr. Þær kröfur sem ríkissjóður yfirtók af Seðlabanka Íslands voru í lok árs 2009 færðar aftur til Eignarhaldsfélags Seðlabanka Íslands og eru nú í umsýslu þess.
2. Hver er fjárhæð lána sem ríkissjóður hefur veitt fjármálafyrirtækjum frá október 2009 til loka árs 2010? Óskað er eftir því að sérstaklega verði tilgreint hvort um víkjandi lán sé að ræða eða ekki og hvernig ábyrgðir skiptast eftir fjármálafyrirtækjum.
| Arion banki hf. | 29.408.320.000 |
| Íslandsbanki hf. | 24.706.672.208 |
| Víkjandi lán til banka | 54.114.992.208 |