Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 531. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1119  —  531. mál.




Svar



efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Margrétar Tryggvadóttur um verðtryggð lán íslenskra heimila og fyrirtækja.

     1.      Hve mikið hafa verðtryggð lán íslenskra heimila hækkað á tímabilinu frá 1. febrúar 2009 til 1. febrúar 2011, í krónum annars vegar og prósentum hins vegar, vegna skattahækkana og annarra aukinna álaga af hálfu ríkisins sem hafa áhrif á vísitölu neysluverðs?
    Áhrif skattahækkana á vísitölu neysluverðs eru um 1,50% frá 1. febrúar 2009 til 1. febrúar 2011 samkvæmt mælingum Hagstofu Íslands. Það þýðir að verðtryggð lán íslenskra heimila hækkuðu sem því nemur að nafnvirði. Í febrúar sl. voru verðtryggð lán heimilanna um 1.220 milljarðar kr. og því nemur hækkunin að nafnvirði um 18,3 milljörðum kr. á tímabilinu. Almenn vörugjöld eru ekki með talin þar sem Hagstofan greinir áhrif þeirra ekki með beinum hætti í vísitölunni.

     2.      Hve mikið hafa verðtryggð lán íslenskra fyrirtækja hækkað frá 1. febrúar 2009 til 1. febrúar 2011, í krónum annars vegar og prósentum hins vegar, vegna skattahækkana og annarra aukinna álaga af hálfu ríkisins sem hafa áhrif á vísitölu neysluverðs?
    Áhrif skattahækkana á vísitölu neysluverðs eru um 1,50% frá febrúar 2009 til febrúar 2011 samkvæmt mælingum Hagstofu Íslands. Það þýðir að verðtryggð lán fyrirtækja hækkuðu sem því nemur að nafnvirði. Samkvæmt tölum frá Seðlabanka Íslands voru verðtryggð lán fyrirtækja og eignarhaldsfélaga í febrúar 2011 um 205 milljarðar kr. og því nemur hækkunin að nafnvirði um 3 milljörðum kr. á tímabilinu. Almenn vörugjöld eru ekki með talin þar sem Hagstofan greinir þau ekki með beinum hætti í vísitölunni.