Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 638. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1123 — 638. mál.
til velferðarráðherra um hjúkrunarrými á Eyjafjarðarsvæðinu.
1. Hversu mörg hjúkrunarrými verða á öldrunarheimilum Akureyrar samkvæmt sparnaðarkröfum ráðuneytisins á þessu fjárlagaári?
2. Hvaða áætlanir hefur ráðuneytið um fjölgun eða fækkun hjúkrunarrýma í framtíðinni á öldrunarheimilum Akureyrar?
3. Á grundvelli hvaða reiknilíkans var tekin ákvörðun um fækkun hjúkrunarrýma hjá öldrunarheimilum Akureyrar og var við þann útreikning tekið tillit til breytinga á tvíbýlum yfir í einbýli sem gerðu það að verkum að töluverð fækkun hafði þegar átt sér stað á heimilunum?
4. Hversu mikið hefur hjúkrunarrýmum á öldrunarheimilum á Eyjafjarðarsvæðinu, þ.m.t. Siglufirði, fækkað frá árinu 2005, sundurliðað eftir árum, og hversu mikið er áætlað að hjúkrunarrýmum verði fækkað á komandi árum?
5. Hversu mikið hefur hjúkrunarrýmum hjá Sjúkrahúsinu á Akureyri fækkað frá árinu 2005, sundurliðað eftir árum, og hversu mikið er áætlað að hjúkrunarrýmum verði fækkað á komandi árum?
6. Hver er stefna ráðherra varðandi rétt aldraðra til að fá fast hjúkrunarrými á þeim stað sem þeir hafa búið á fram að flutningi á öldrunarheimili?
7. Er það í samræmi við stefnu ráðherra að aldraðir þurfi að taka fast hjúkrunarrými í öðru sveitarfélagi, sem viðkomandi hefur engin tengsl við, í stað þess að fá hjúkrunarrými í heimasveitarfélagi viðkomandi, sökum fækkunar hjúkrunarrýma heima fyrir? Hefur það áhrif á framtíðarrétt viðkomandi einstaklings ef hann neitar að taka slíku plássi?
Skriflegt svar óskast.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1123 — 638. mál.
Fyrirspurn
til velferðarráðherra um hjúkrunarrými á Eyjafjarðarsvæðinu.
Frá Kristjáni Þór Júlíussyni.