Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 435. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1155 — 435. mál.
velferðarráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur um greiðsluþátttöku í tannlækniskostnaði langveikra og fatlaðra barna á spítala.
1. Hvernig er greiðsluþátttöku í tannlækniskostnaði langveikra og fatlaðra barna sem leggjast inn á spítala háttað og hvað er um mörg börn að ræða á ári að meðaltali?
Nokkur börn á ári fá tannviðgerðir í svæfingu á Landspítalanum við Hringbraut, með aðstoð og vilja Barnaspítala Hringsins en börnin eru ekki alltaf inniliggjandi. Að meðaltali eru þetta líklega um 12–15 börn á ári. Um er að ræða börn sem þurfa tannaðgerð í svæfingu en ekki telst læknisfræðilega verjandi að svæfa þau annars staðar en á sjúkrahúsi. Þau eru fötluð eða með sjúkdóm sem verður til þess að svæfingin eða aðgerðin verður þeim varasamari en ella og þörf er á öllu því öryggi sem fullbúið sjúkrahús getur boðið upp á. Tannlæknar greiða sjúkrahúsinu aðstöðugjald eftir lengd aðgerðar.
Tannlækniskostnaður er greiddur af forráðamönnum barnanna sem fá endurgreitt frá Sjúkratryggingum Íslands eftir því hvaða rétt börnin eiga til endurgreiðslu samkvæmt reglugerð nr. 698/2010, um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tannlækningar. Á sama hátt er greiddur hluti kostnaðar við svæfinguna í sama hlutfalli og tannlækniskostnaður.
2. Er barnatannlæknir fastráðinn við Barnaspítala Hringsins?
Enginn barnatannlæknir er fastráðinn við Barnaspítala Hringsins. Barnatannlæknar leigja aðstöðuna af sjúkrahúsinu en koma sjálfir með aðstoðarfólk sitt, verkfæri og efni.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1155 — 435. mál.
Svar