Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 652. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1157 — 652. mál.
um breytingu á lögum nr. 101/2010, um greiðsluaðlögun einstaklinga (dráttarvextir o.fl.).
Kröfur sem greiðsluaðlögun tekur til skulu ekki bera dráttarvexti, sem fallið hafa til frá og með 1. janúar 2008, og skal greiðsluaðlögun leiða til brottfalls áfallinna dráttarvaxta á þessu tímabili.
Í frumvarpi þessu eru lagðar til breytingar á lögum nr. 101/2010, um greiðsluaðlögun einstaklinga, annars vegar að kröfuhöfum beri að fella niður dráttarvexti og hins vegar að a–c- liður 2. mgr. 6. gr. falli brott.
Markmið laganna er að gera einstaklingum í verulegum greiðsluerfiðleikum kleift að endurskipuleggja fjármál sín og koma á jafnvægi milli skulda og greiðslugetu þannig að raunhæft sé að skuldari geti staðið við skuldbindingar sínar um fyrirsjáanlega framtíð. Sanngirnissjónarmið leiða til þess að eðlilegt er að dráttarvextir falli niður og auk þess eru meiri líkur á að skuldari geti staðið við samning um greiðsluaðlögun. Dráttarvextir á þeim tíma sem hvað mestir efnahagserfiðleikar hafa gengið yfir hér á landi voru gríðarháir, fóru hæst í 26,5%. Oftar en ekki hafa nokkurra mánaða vanskil á greiðslum leitt til þess að allur höfuðstóll viðkomandi kröfu var gjaldfelldur og hefur tekið dráttarvexti frá þeim tíma. Sökum þess hve háir dráttarvextirnir voru á þessu tímabili, en þeir voru yfir 20% allt frá 1. janúar 2005 til 1. júlí 2009, hefur þetta valdið miklum viðbótarkostnaði ofan á kröfur. Þótt greiðsluaðlögun leiði í mörgum tilfellum til lækkunar eftirstöðva krafna skuldara þá er oft um það að ræða að sú niðurfelling sé aðeins hlutfallsleg og þannig situr hluti dráttarvaxtanna í reynd eftir á kröfunni. Eðlilegt þykir að kröfur í gjaldþrotaskiptum verði meðhöndlaðar þannig að dráttarvextir falli út.
Í 2. gr. er lagt til að a–c-liður 2. mgr. 6. gr. falli brott. Með niðurfellingu liðanna er greiðsluaðlögunarferlið einfaldað en ljóst er að einhverjum umsóknum um greiðsluaðlögun hefur verið hafnað á grundvelli ákvæðisins auk þess sem tilvist þessara skilyrða hefur sett töluverða rannsóknar- og gagnaöflunarskyldu á umboðsmann skuldara, sem ber að meta allar umsóknir út frá þessum matskenndu skilyrðum. Með því að fella þau út ætti málshraði hjá umboðsmanni skuldara að aukast töluvert. Samfélagslegur ávinningur af því að sem flestir standi í skilum eða fái nauðsynlega aðstoð er mikill og mun það að lokum leiða til hraðari endurreisnar efnahagslífsins.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1157 — 652. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 101/2010, um greiðsluaðlögun einstaklinga (dráttarvextir o.fl.).
Flm.: Guðlaugur Þór Þórðarson, Ólöf Nordal, Þorgerður K. Gunnarsdóttir,
Kristján Þór Júlíusson, Unnur Brá Konráðsdóttir, Ragnheiður Ríkharðsdóttir,
Birgir Ármannsson, Sigurður Kári Kristjánsson, Jón Gunnarsson.
1. gr.
Við 3. gr. laganna bætist ný málsgrein, 2. mgr., svohljóðandi:Kröfur sem greiðsluaðlögun tekur til skulu ekki bera dráttarvexti, sem fallið hafa til frá og með 1. janúar 2008, og skal greiðsluaðlögun leiða til brottfalls áfallinna dráttarvaxta á þessu tímabili.
2. gr.
A–c-liður 2. mgr. 6. gr. laganna falla brott.3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Greinargerð.