Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 543. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1170 — 543. mál.
innanríkisráðherra við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar um kostnað við Landsdóm o.fl.
1. Hver er áætlaður kostnaður við Landsdóm á þessu ári?
Í fjárlögum ársins 2011 er veitt 113,4 millj. kr. fjárheimild vegna þingsályktunar Alþingis um að kalla saman landsdóm. Þar kemur einnig fram að þar sem óvíst sé hversu langan tíma meðferð málsins taki séu útgjöldin háð óvissu.
2. Hver er áætlaður kostnaður við saksókn í tengslum við Landsdóm nú í ár og á síðasta ári?
Þar sem kostnaður við saksókn greiðist af Alþingi eru umbeðnar upplýsingar ekki til staðar hjá ráðuneytinu.
3. Er möguleiki á að einhver kostnaður leggist til á næsta ári?
Ef meðferð málsins verður ekki lokið á þessu ári gæti einhver kostnaður lagst til á næsta ári.
4. Býr ráðuneytið sig undir fleiri landsdómsmál á næstunni, t.d. út af framgöngu ráðherra í aðdraganda Icesave-málsins?
Eins og fram kemur í lögum um landsdóm, nr. 3/1963, fer landsdómur með og dæmir þau mál er Alþingi ákveður að höfða gegn ráðherrum. Það er þannig Alþingis en ekki innanríkisráðuneytisins að undirbúa eða taka ákvarðanir um slíkar málsóknir.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1170 — 543. mál.
Svar