Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 554. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1173  —  554. mál.




Svar



umhverfisráðherra við fyrirspurn Sivjar Friðleifsdóttur um verndaráætlun fyrir Vatnajökulsþjóðgarð.

     1.      Gáfu stjórnvöld í aðdraganda stofnunar Vatnajökulsþjóðgarðs og vinnslu verndaráætlunar fyrir hann fyrirheit um að hefðbundnum nytjum, svo sem veiðinytjum á grundvelli sjálfbærrar nýtingar, yrði viðhaldið innan þjóðgarðsins? Ef svo er, í hverju voru þau fyrirheit fólgin og í hvaða skýrslum eða öðrum gögnum koma þau fram?
    Í aðdraganda að stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs, m.a. í nefndarstarfi þingmannanefndar um stofnun þjóðgarðs eða verndarsvæðis norðan Vatnajökuls, var rætt um og gert ráð fyrir að á ákveðnum svæðum innan þjóðgarðsins gæti hefðbundin landbúnaðarnýting haldist með þeim formerkjum að nýtingin væri sjálfbær. Jafnframt var rætt um að á ákveðnum svæðum gætu sjálfbærar veiðar haldist jafnframt stofnun þjóðgarðsins. Þetta kemur m.a. fram á bls. 21–23 í skýrslu umhverfisráðuneytisins „Þjóðgarður norðan Vatnajökuls, maí 2004“.
    Í skýrslu ráðgjafarnefndar umhverfisráðuneytisins, „Vatnajökulsþjóðgarður, nóvember 2006“, kemur fram að „…landeigendur og ábúendur geti viðhaldið þeirri hefðbundnu nýtingu sem viðgengist hefur fram til þessa á svæðum sem verða innan Vatnajökulsþjóðgarðs. Í meginatriðum er hér um að ræða búfjárbeit og veiðar af ýmsu tagi, svo sem fuglaveiðar, hreindýraveiðar og veiðar í ám og vötnum.“
    Í verndaráætlun þjóðgarðsins er gert ráð fyrir að hefðbundnum nytjum verði viðhaldið á þann hátt sem fyrirheit voru gefin um. Takmarkanir á skotveiðum við Snæfell og Eyjabakka ná yfir lítinn hluta þjóðgarðsins í heild og eru sérstaklega rökstuddar m.a. með tilliti til mögulegra árekstra við göngufólk á þessu svæði og að varp kunni að vera seinna á ferð á þessu svæði en almennt gerist. Aðrar breytingar hafa ekki verið gerðar á hefðbundnum nytjum í garðinum.

     2.      Var haft samráð við útivistarhópa, svo sem Skotveiðifélag Íslands (Skotvís) og Ferðaklúbbinn 4x4, við gerð verndaráætlunar fyrir Vatnajökulsþjóðgarð? Ef svo er, í hverju fólst það samráðsferli?
    Víðtækt samráðsferli liggur á bak við verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs frá upphafi þeirrar vinnu fram að staðfestingu. Eins og lög gera ráð fyrir fór vinna við verndaráætlunina fyrst fram á vettvangi fjögurra svæðisráða og síðar á vettvangi stjórnar þjóðgarðsins, sem gekk frá tillögu að verndaráætlun til ráðherra og í samskiptum við ráðuneytið eftir að tillögur stjórnar bárust umhverfisráðuneytinu.
    Samráðsferlið hófst við gerð tillagna að verndaráætlunum hjá svæðisráðunum og stóð allan vinnslutímann. Ferlið fór fram með ýmsum hætti. Á vegum svæðisráða og ráðgjafa þeirra voru haldnir opnir íbúafundir, fundir með svæðisbundnum félagasamtökum og kynningar. Einnig voru lokaðir fundir um einstök málefni og viðhorfskannanir unnar meðal gesta og starfsmanna þjóðgarðsins. Samkvæmt upplýsingum frá Vatnajökulsþjóðgarði var bæði Skotveiðifélagi Íslands og Ferðaklúbbnum 4x4 boðið að taka þátt í þessu samráði. Í öllum svæðisráðum þjóðgarðsins situr sameiginlegur fulltrúi þessara samtaka, svo og í stjórn þjóðgarðsins. Stefnuhluti verndaráætlunar byggist að verulegu leyti á efniviði sem fenginn var á samráðsfundi með fjölmörgum hagsmunaaðilum í nóvember 2009. Meðan á gerð verndaráætlunar stóð hafði stjórn þjóðgarðsins samráð við ýmsar stofnanir og ráðuneyti, félagasamtök, fulltrúa í svæðisráðum, starfsmenn þjóðgarðsins, sérfræðinga á tilteknum sviðum og fleiri. Boðið var upp á að senda almennar athugasemdir og var þeim svarað af stjórninni og liggja þau svör fyrir.
    Eftir að umhverfisráðuneytið fékk áætlunina til staðfestingar fékk ráðherra skriflegar athugasemdir frá ýmsum aðilum og beiðni um fundi og varð við beiðnum allra þeirra sem þess óskuðu. Þar á meðal voru Skotvís og Ferðaklúbburinn 4x4. Í greinargerð sem ráðuneytið gerði samhliða staðfestingu er greint frá áliti ráðuneytisins á ágreiningsefnum og samráðsferlinu. Þótt víðtækt samráð hafi farið fram á ýmsum stigum er lagt til að stjórn þjóðgarðsins skoði sérstaklega samgönguþáttinn, sem var umdeildasti þáttur verndaráætlunarinnar, a.m.k. miðað við fjölda og umfang þeirra athugasemda sem ráðuneytinu bárust. Lagt er til að þessi þáttur verði skoðaður frekar í sérstökum samstarfsvettvangi sem stjórn þjóðgarðsins komi á fót og hefur ný stjórn þjóðgarðsins þegar hafið undirbúning að því.

     3.      Hver er að mati ráðherra ástæða þess að útivistarhópar, svo sem Skotvís og Ferðaklúbburinn 4x4, líta svo á að þeir hafi verið blekktir og telja að samráðsferlið hafi verið algerlega ófullnægjandi?
    Ekki er auðvelt fyrir ráðuneytið að svara spurningu um skoðanir viðkomandi félagasamtaka eða rýna í ástæður að baki þeim. Í samtölum við ráðherra kom skýrt fram að nefnd samtök töldu samráð hafa verið ófullnægjandi á vinnslustigi tillagna að verndaráætlun þjóðgarðsins, en ekki var notað það orðalag þar að þau hefðu verið „blekkt“. Ljóst er að langt samráðsferli var til staðar, en jafnframt ljóst að þessum samtökum og e.t.v. öðrum fannst að rödd þeirra hefði ekki komið nægilega sterkt fram í því ferli og að öllum athugasemdum hefði ekki verið nægilega svarað með rökum. Sum félög töldu að þeirra sjónarmið hefðu e.t.v. ekki komið nógu skýrt fram hjá sameiginlegum fulltrúum útivistarmanna í svæðisráðum. Ráðuneytið lét kanna það sérstaklega hvort einhver ákvæði laga um þjóðgarðinn hefðu verið brotin á fyrri stigum samráðs eða hvort því hefði verið ábótavant frá lagalegum skilningi. Niðurstaðan var að svo væri ekki. Ráðuneytið telur þó ekki að samráð snúist eingöngu um lagalegt form og skoðaði m.a. hvort efnisleg og rökstudd svör hefðu borist við athugasemdum. Fulltrúar Ferðaklúbbsins 4x4 nefndu að þeir hefðu sent inn ítarlegar rökstuddar tillögur um einstakar slóðir til stjórnar þjóðgarðsins og vildu fá umfjöllun á fundum um hverja og eina, en ekki almenn svör eins og stjórnin sendi frá sér. Ráðuneytið telur að stjórnin hafi haft knappan tíma til að fara í slíka vinnu í lokafasa áætlunarinnar, en telur engu síður æskilegt að skoða samgöngukerfið og skipulag þess betur, m.a. í ljósi þessara athugasemda Ferðaklúbbsins 4x4. Lagt er til að samstarfsvettvangur um samgöngumál innan þjóðgarðsins verði settur á fót, sem gefur færi á slíkri yfirferð. Auðvitað er óvíst að niðurstaða úr slíku ítarlegra samráði verði öllum að skapi, því þarna togast á ólík sjónarmið. Reyna þarf til þrautar að ná málamiðlun sem flestir geta sætt sig við, en stjórn þjóðgarðsins ber endanlega ábyrgð á niðurstöðunni. Varðandi skotveiðar, þá er það mat ráðuneytisins að rök málsins og sjónarmið aðila hafi legið nokkuð skýrt fyrir og að óánægju með niðurstöðu þar megi fremur rekja til ólíks mats á forsendum en skorts á samráði. Ráðuneytið bendir á að ef forsendur takmarkana á veiðum við Snæfell og Eyjabakka breytast eða hægt er að sýna fram á að rök fyrir þeim séu hæpin, geti Skotvís og aðrir farið fram á breytingar á reglum þar um sem stjórn garðsins tekur afstöðu til.

     4.      Mun ráðherra beita sér í því að ná sáttum við þá útivistarhópa, svo sem Skotvís og Ferðaklúbbinn 4x4, sem eru óánægðir með núverandi verndaráætlun fyrir Vatnajökulsþjóðgarð? Kemur til greina að endurskoða áætlunina?
    Það er mikilvægt að góð sátt ríki meðal þjóðarinnar um starfsemi Vatnajökulsþjóðgarðs og verndaráætlun hans. Ljóst er hins vegar að hagsmunir fara ekki alltaf saman, svo sem hjá hinum ýmsu hópum útivistarfólks. Ráðuneytið hefur því þegar beitt sér fyrir því að reynt verði að ná betri sátt um samgöngumál innan þjóðgarðsins með því að stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs setji á fót sérstakan samstarfsvettvang um þau. Stjórn þjóðgarðsins hefur gefið það út að hún muni setja slíkt samstarf á fót. Hvað önnur mál varðar, svo sem skotveiði, þá liggja rök málsins skýrar fyrir og því ekki nauðsynlegt að fara yfir þau með sama hætti og samgönguþáttinn; ráðuneytið telur þó að vissulega megi endurskoða ákvæði þar um ef forsendur eða aðstæður breytast og gefa tilefni til þess. Það er þó ekki umhverfisráðuneytisins að gera slíkt, því lög gera ráð fyrir að gerð og framkvæmd verndaráætlunar sé á ábyrgð stjórnar þjóðgarðsins og þá líka möguleg endurskoðun á einstökum ákvæðum. Verndaráætlunin er mjög umfangsmikil og nær til mun fleiri atriða en skotveiða og samgangna og það virðist ríkja víðtæk sátt um flesta aðra þætti hennar – það má ekki gleyma því. Verndaráætlunin verður endurskoðuð reglulega og stjórnin hefur heimild til að breyta henni. Það skiptir þó miklu máli að nú er kominn skýr rammi í formi verndaráætlunar, sem er mjög ítarleg og byggð á mikilli vinnu svæðisráða og stjórnar.