Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 669. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1186  —  669. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um utanlandsferðir starfsmanna og embættismanna.

Frá Vigdísi Hauksdóttur.



     1.      Hvað fóru starfsmenn ráðuneyta og embættismenn í undirstofnunum þeirra oft til útlanda á árunum 2007–2010? Til hvaða lands var farið og í hvaða erindum?
     2.      Hver er heildarkostnaður við ferðirnar með dagpeningum, sundurliðað eftir árum, ráðuneyti og undirstofnunum?


Skriflegt svar óskast.