Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 671. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1188  —  671. mál.




Fyrirspurn



til velferðarráðherra um starfsendurhæfingarstöðvar.

Frá Vigdísi Hauksdóttur.



     1.      Hve margar starfsendurhæfingarstöðvar falla undir verksvið ráðuneytisins og á hvaða sviðum starfa þær?
     2.      Hver hafa heildarframlög ríkisins til þessara stöðva verið sl. fimm ár, sundurliðað eftir árum og einstökum endurhæfingarstöðvum?
     3.      Þegar framlög til endurhæfingarstöðva eru ákveðin er þá farið eftir:
                  a.      fjölda einstaklinga sem nýta sér endurhæfinguna hverju sinni, eða
                  b.      umfangi og stærð þeirrar þjónustu sem boðið er upp á?
     4.      Er munur á framlögum ríkisins til endurhæfingarstöðva eftir málaflokkum og ef svo er, hver er ástæða þess?
     5.      Hversu margir þjónustusamningar eru í gildi við endurhæfingarstöðvar? Um hvaða stöðvar er að ræða, hve mikið er greitt í hverju tilviki fyrir þjónustu við hvern einstakling og hvaða ár voru þjónustusamningarnir gerðir?
     6.      Hvernig er eftirliti háttað með starfsemi endurhæfingarstöðva sem fá greiðslur frá ríkinu og hver annast eftirlitið?


Skriflegt svar óskast.