Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 735. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1260  —  735. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 143/2009, um breytingar á ýmsum lögum vegna endurskoðunar á undanþágum frá I. kafla I. viðauka við EES-samninginn og innleiðingar á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 178/2002 frá 28. janúar 2002 auk afleiddra gerða.

Flm.: Sigurður Ingi Jóhannsson, Einar K. Guðfinnsson.



1. gr.

    41. gr. laganna orðast svo:
    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
    Störf héraðsdýralækna hjá Matvælastofnun eru lögð niður við gildistöku þessa ákvæðis. Viðkomandi starfsmönnum skulu boðin störf hjá Matvælastofnun. Ákvæði 7. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, gildir ekki um störf sem ráðið er í samkvæmt þessu ákvæði. Þó skulu ekki lögð niður störf þeirra héraðsdýralækna hjá Matvælastofnun sem starfa á svæðum þar sem ekki hafa fengist dýralæknar til þess að sinna almennri þjónustu við dýraeigendur. Skal þeim heimilt að sinna slíkri þjónustu þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. 11. gr. Þegar dýralæknar hafa fengist til að sinna áðurnefndri þjónustu skulu störf héraðsdýralæknanna lögð niður en þó eigi síðar en 31. desember 2014. Þrátt fyrir ákvæði 11. og 12. gr. er ráðherra heimilt að skilgreina umdæmi og vaktsvæði héraðsdýralæknanna með reglugerð.
    Ráðherra skal setja reglugerð skv. 13. gr. eigi síðar en 1. júlí 2010.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Í nefndaráliti meiri hluta sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar um frumvarp það sem síðar varð að lögum nr. 143/2009, um breytingar á ýmsum lögum vegna endurskoðunar á undanþágum frá I. kafla I. viðauka við EES-samninginn og innleiðingar á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 178/2002 frá 28. janúar 2002 auk afleiddra gerða, kom eftirfarandi m.a. fram: „Ein af meginbreytingum í þessum kafla frumvarpsins er sú að skilið verði á milli opinbers eftirlits héraðsdýralækna og almennrar dýralæknaþjónustu þeirra. Forsenda breytinganna er að tryggja að héraðsdýralæknar sinni eingöngu opinberum eftirlitsstörfum, en séu ekki samhliða þeim að sinna almennri dýralæknaþjónustu. […] Á fundi nefndarinnar þar sem fjallað var um þann hluta frumvarpsins sem snýr að breytingum á lögum um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, nr. 66/1998, með síðari breytingum, komu fram sjónarmið þess efnis að með boðuðum breytingum væri verið að skerða dýralæknaþjónustu á landsbyggðinni og þannig væri vegið að rétti dýra og dýraeigenda til aðgengis að dýralæknaþjónustu. Auk þess sem breytingarnar séu til þess fallnar að skapa óvissu um fyrirkomulag dýralæknaþjónustu við dreifðari byggðir landsins og verði til þess að dýralæknar hverfi úr störfum í strjálbýli og erfitt verði að manna stöðurnar. Nefndin vekur athygli á að í frumvarpinu er komið til móts við þær gagnrýnisraddir sem telja þessar breytingar stofna heilbrigði eða velferð dýra í hættu með því að heimila eftirlitsdýralæknum sem starfa hjá Matvælastofnun, og vinna í umdæmum héraðsdýralækna, að stunda almennar dýralækningar auk opinberra starfa. Einnig er undanþáguheimild til bráðabirgða í 41. gr. fyrir ráðherra til að fela héraðsdýralækni að sinna almennri þjónustu í sínu umdæmi tímabundið gerist þess þörf. […] Nefndin telur ástæðu til að vekja athygli á því að það liggur fyrir, sbr. 79. gr., að III. kafli frumvarpsins um breytingu á lögum um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, tekur ekki gildi fyrr 1. október 2011 […].“
    Á fundi sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar hinn 19. janúar 2011 kom fram í máli fulltrúa Matvælastofnunar að ákvæði 41. gr. laganna væri túlkað á þann veg að ráðherra geti aðeins falið þeim héraðsdýralæknum að sinna almennri dýralæknaþjónustu sem lögin gera ráð fyrir að starfi á grundvelli þeirra eftir gildistöku framangreindrar 41. gr. Þessi túlkun stofnunarinnar fer þvert gegn skilningi þorra þeirra þingmanna sem áttu sæti í nefndinni á samþykktartíma framangreinds nefndarálits. Var skilningur þeirra sá að með bráðabirgðaákvæði 41. gr. laganna væri verið að tryggja að ekki yrðu lagðar niður stöður héraðsdýralækna hjá Matvælastofnun á þeim svæðum sem við slíka aðgerð væru svipt möguleikanum á eðlilegri heilbrigðisþjónustu við dýr. Byggði nefndin tillögur sínar til breytingar á 41. gr. frumvarps þess sem síðar varð að lögun nr. 143/2009 á sjónarmiðum um að treysta bæri byggðir landsins, tryggja bæri að hagsmunir dýraeigenda og réttur dýra til læknisþjónustu yrði ekki skertur og starfsaðstæður og starfsöryggi dýralækna væri tryggt.
    Í ljósi alls framangreinds og í því skyni að treysta þau mikilvægu sjónarmið og réttindi sem hér hafa verið nefnd er frumvarp þetta lagt fram.