Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 589. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1268 — 589. mál.
fjármálaráðherra við fyrirspurn Gunnars Braga Sveinssonar um laun í Stjórnarráðinu.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvaða laun eru greidd í Stjórnarráðinu fyrir störf deildarstjóra, deildarsérfræðings, lögfræðings, stjórnarráðsfulltrúa, skrifstofustjóra, hagfræðings, sérfræðings? Hver eru heildarlaun og útborguð laun sundurliðuð eftir lægstu greiddu launum hvers starfsheitis, meðallaunum og hæstu greiddu launum hvers starfsheitis?
Eftirfarandi upplýsingar miðast við laun fyrir febrúar 2011 og starfsmenn í meira en 50% starfshlutfalli. Miðað er við upplýsingar í miðlægu launavinnslukerfi Fjársýslu ríkisins. Í svarinu koma fram grunnlaun (mánaðarlaun), í stað útborgaðra launa, og heildarlaun viðkomandi starfa. Breytingin er gerð í samráði við fyrirspyrjanda.
Skráning starfsheita (launaheita) er ekki samræmd milli ráðuneyta í Stjórnarráðinu og ekki eru öll þau starfsheiti sem nefnd eru í fyrirspurninni skráð sérstaklega. Af þessum sökum eru starfsheiti í svarinu þremur færri en í fyrirspurninni.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1268 — 589. mál.
Svar

|
Grunnlaun (mánaðarlaun) eftir störfum |
Fjöldi einstaklinga |
Lægstu grunnlaun | Meðaltal grunnlauna | Hæstu grunnlaun |
| Skrifstofustjóri | 55 | 533.653 | 634.999 | 659.653 |
| Deildarstjóri | 19 | 295.240 | 445.197 | 559.298 |
| Sérfræðingur | 228 | 287.724 | 428.490 | 638.032 |
| Stjórnarráðsfulltrúi | 45 | 243.134 | 280.021 | 340.580 |
| Heildarlaun eftir störfum | Fjöldi einstaklinga |
Lægstu heildarlaun | Meðaltal heildarlauna |
Hæstu heildarlaun |
| Skrifstofustjóri | 55 | 617.143 | 663.442 | 715.291 |
| Deildarstjóri | 19 | 414.960 | 511.754 | 634.806 |
| Sérfræðingur | 228 | 343.965 | 509.458 | 770.234 |
| Stjórnarráðsfulltrúi | 45 | 249.035 | 337.674 | 586.277 |