Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 121. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1276  —  121. mál.




Breytingartillögur



við frv. til l. um grunngerð landupplýsinga.

Frá umhverfisnefnd.



     1.      Við 1. gr.
                  a.      Í stað orðanna „grunngerð landupplýsinga“ komi: grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar.
                  b.      Í stað orðanna „á Íslandi“ komi: um Ísland.
     2.      Við 2. gr.
                  a.      2. mgr. orðist svo:
                      Lög þessi taka einnig til stafrænna landupplýsinga í eigu eða á vegum lögaðila sem falla undir ákvæði b–c-liðar 3. tölul. 3. gr. að svo miklu leyti sem þær verða til eða er aflað í tilefni af hinu opinbera hlutverki þeirra eða þjónustu.
                  b.      4. og 5. mgr. orðist svo:
                      Stafrænar landupplýsingar í eigu annarra en lög þessi taka til falla undir lög þessi hafi eigandi þeirra fengið leyfi til að tengja þær við landupplýsingagátt, sbr. 5. gr., á grundvelli laga þessara.
                      Séu til mörg samsvarandi eintök af sömu gögnum ná lögin einungis til upprunalegrar útgáfu þeirra.
     3.      Við 3. gr.
                  a.      1. tölul. orðist svo: Grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar: Tækni, stefnur, staðlar og mannauður sem þarf til að afla stafrænna landupplýsinga, vinna úr þeim, varðveita, miðla og auðvelda notkun þeirra.
                  b.      Í stað orðanna „sem eru tengd yfirborði jarðar“ í 2. tölul. komi: sem tengjast stað á, í eða yfir jörðu.
                  c.      6. tölul. falli brott.
                  d.      7. tölul. orðist svo: Landupplýsingagátt: Vefsetur sem veitir aðgang að stafrænum landupplýsingum og tengdri þjónustu.
     4.      Við 4. gr. Á undan orðinu „landupplýsingar“ komi: stafrænu.
     5.      5. gr. orðist svo:
                      Landmælingar Íslands skulu starfrækja landupplýsingagátt til að veita aðgang að stafrænum landupplýsingum og upplýsingum um þær. Eftirtalin vefþjónusta skal vera aðgengileg öllum í gegnum landupplýsingagáttina:
              1.      Lýsigagnaþjónusta sem gefur kost á að leita að stafrænum landupplýsingum og tengdri þjónustu.
              2.      Skoðunarþjónusta sem að lágmarki gefur kost á að skoða gögn, skýringar þeirra og lýsigögn, fara um þau, þysja inn/út, hliðra þeim eða skara.
              3.      Niðurhalsþjónusta sem gefur kost á að hala niður afritum stafrænna landupplýsinga eða fá beinan aðgang að þeim, hvort sem er að öllu leyti eða að hluta.
              4.      Vörpunarþjónusta sem gefur kost á að varpa stafrænum landupplýsingum til að samhæfni náist.
              5.      Þjónusta sem gefur kost á að virkja ólíka vefþjónustu landupplýsinga.
                      Aðgangur að þjónustu skv. 1.–5. tölul. 1. mgr. skal opinn öllum með þeim takmörkunum á upplýsingarétti sem greinir í 6. gr. laga um upplýsingarétt um umhverfismál.
                      Upplýsingatexti skal vera til í íslenskri útgáfu eftir því sem unnt er. Lýsigögn öll skulu vera til í íslenskri útgáfu.
     6.      Við 6. gr.
                  a.      Í stað orðsins „landupplýsingar“ í 1. og 2. mgr. komi: stafrænar landupplýsingar.
                  b.      Í stað orðanna „vefþjónusta vegna þeirra“ í 1. mgr. og orðsins „vefþjónusta“ í 2. mgr. komi: tengd vefþjónusta.
     7.      7. gr. orðist svo:
                      Nú búa aðrir en stjórnvöld yfir stafrænum landupplýsingum í samræmi við ákvæði laga þessara og reglugerða settra á grundvelli þeirra, og geta þeir þá sótt um að fá að tengja landupplýsingar sínar við landupplýsingagátt. Beiðni um slíkt skal send Landmælingum Íslands sem taka ákvörðun um hvort tenging sé heimil. Jafnframt geta Landmælingar Íslands haft frumkvæði að því að aðrir en stjórnvöld tengi gögn sín við landupplýsingagátt.
     8.      Við 8. gr.
                  a.      1. mgr. orðist svo:
                      Stjórnvöld skv. a- og b-lið 3. tölul. 3. gr. skulu veita hver öðrum aðgang að stafrænum landupplýsingum og tengdri vefþjónustu og gera hver öðrum kleift að skiptast á og nota upplýsingar sínar í opinberum verkefnum.
                  b.      Í stað orðsins „landupplýsingum“ í 2. mgr. komi: stafrænum landupplýsingum.
     9.      Við 9. gr.
                  a.      Í stað orðanna „hafa umsjón með“ í 1. mgr. komi: fara með.
                  b.      Orðið „virkni“ í 2. mgr. falli brott.
     10.      10. gr. ásamt fyrirsögn orðist svo:

Aðgerðaáætlun.


                      Landmælingar Íslands gera tillögu til ráðherra um aðgerðaáætlun við uppbyggingu, rekstur og viðhald grunngerðar fyrir stafrænar landupplýsingar um Ísland. Aðgerðaáætlunin skal vera til fimm ára í senn og skal umhverfisráðherra staðfesta hana.
     11.      11. gr. orðist svo:
                      Þjónusta skv. 1. og 2. tölul. 1. mgr. 5. gr. er veitt án endurgjalds. Heimilt er að hafa gögn hjá skoðunarþjónustu skv. 2. tölul. 1. mgr. 5. gr. á því sniði að þau verði ekki notuð í viðskiptalegum tilgangi.
                      Heimilt er að innheimta gjald fyrir þjónustu skv. 3., 4. og 5. tölul. 1. mgr. 5. gr. Þjónustugjöld þessi skulu ákvörðuð í gjaldskrá sem ráðherra staðfestir. Upphæð gjalds skal taka mið af kostnaði við að veita þjónustu, má ekki vera hærra en kostnaður við þjónustuna og skal byggð á rekstraráætlun þar sem þau atriði eru rökstudd sem ákvörðun gjalds byggist á. Gjaldskrá skal birta í B-deild Stjórnartíðinda.
                      Notendum skal gert kleift að greiða þjónustugjald skv. 2. mgr. með rafrænum hætti.
     12.      Við 12. gr. Í stað orðanna „um notkun, útbreiðslu og aðgengi að landupplýsingum“ komi: um notkun landupplýsinga, útbreiðslu þeirra og aðgang að þeim.
     13.      Við 13. gr.
                  a.      A-liður orðist svo: þá þætti upplýsinga sem lögin ná til, sbr. 2. gr.
                  b.      Orðið „skulu“ í b-lið falli brott.
                  c.      C-liður orðist svo: landupplýsingagátt, sbr. 5. gr., m.a. um samsetningu leitarþátta.
     14.      Við 14. gr. Í stað orðanna „Lög þessi eru sett til innleiðingar á“ komi: Með lögum þessum er innleidd.
     15.      Við 15. gr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þó skal 1. málsl. 10. gr. öðlast gildi 1. janúar 2014.
     16.      16. gr. orðist svo:
                      Við 4. gr. laga nr. 103/2006, um landmælingar og grunnkortagerð, bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Að fara með framkvæmd laga um grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar, þ.m.t. að sjá um rekstur, viðhald og tæknilega þróun landupplýsingagáttar.
     17.      Við ákvæði til bráðabirgða. Í stað ártalsins „2011“ komi: 2012.
     18.      Við bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
                      Fyrsta aðgerðaáætlun skv. 10. gr. skal vera tilbúin til staðfestingar 1. janúar 2014.
                      Frá gildistöku laga þessara til 1. janúar 2014 skal starfa samræmingarnefnd um grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar. Hlutverk nefndarinnar er að vinna að fyrstu aðgerðaáætlun skv. 1. mgr. og aðstoða stjórnvöld við frekari stefnumótun á þessu sviði. Umhverfisráðherra skipar nefndina og skulu vera í henni tíu fulltrúar. Umhverfisráðherra tilnefnir einn fulltrúa, forsætisráðherra einn, iðnaðarráðherra einn, innanríkisráðherra einn, mennta- og menningarmálaráðherra einn, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra einn, og skulu þessir fulltrúar ráðherranna annast tengsl við stofnanir viðkomandi ráðuneyta, Samband íslenskra sveitarfélaga einn, LÍSA, samtök um landupplýsingar á Íslandi, einn og Landmælingar Íslands einn. Umhverfisráðherra skipar formann nefndarinnar.
     19.      Fyrirsögn frumvarpsins verði: Frumvarp til laga um grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar.