Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1313, 139. löggjafarþing 624. mál: stofnun sameignarfyrirtækis um Orkuveitu Reykjavíkur (fyrirkomulag eigendaábyrgða).
Lög nr. 39 20. apríl 2011.
Komi fram beiðni um greiðslustöðvun, nauðasamninga eða gjaldþrotaskipti skulu ákvæði laga um gjaldþrotaskipti, eins og þau eru á hverjum tíma, eiga við um Orkuveitu Reykjavíkur með sama hætti og um félag með takmarkaða ábyrgð.
Þingskjal 1313, 139. löggjafarþing 624. mál: stofnun sameignarfyrirtækis um Orkuveitu Reykjavíkur (fyrirkomulag eigendaábyrgða).
Lög nr. 39 20. apríl 2011.
Lög um breytingu á lögum nr. 139/2001, um stofnun sameignarfyrirtækis um Orkuveitu Reykjavíkur, með síðari breytingum.
1. gr.
4. mgr. 1. gr. laganna orðast svo:Komi fram beiðni um greiðslustöðvun, nauðasamninga eða gjaldþrotaskipti skulu ákvæði laga um gjaldþrotaskipti, eins og þau eru á hverjum tíma, eiga við um Orkuveitu Reykjavíkur með sama hætti og um félag með takmarkaða ábyrgð.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 14. apríl 2011.