Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 663. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1320  —  663. mál.




Svar



velferðarráðherra við fyrirspurn Guðmundar Steingrímssonar um biðlista eftir þjónustu barna- og unglingageðdeildar Landspítalans.

     1.      Hversu margir eru á biðlista eftir þjónustu barna- og unglingageðdeildar Landspítalans (BUGL)?
    Á biðlista barnadeildar eru um þessar mundir 15 börn. Flestar umsóknirnar eru frá þessu ári. Starfsemi deildarinnar er mjög skólatengd og er deildin nú lokuð lengur en áður yfir sumarið eða í rúma tvo mánuði, frá júní til ágúst. Biðlisti þessarar deildar er breytilegur og síðastliðið haust var til dæmis nánast enginn biðlisti en nú eru líkur á að einhver biðlisti hafi myndast þegar deildin verður opnuð í ágúst eftir sumarlokun.
    Á biðlista bráðamóttökudeildar unglinga eru nú 12 börn á aldrinum 13–17 ára. Deildin er alltaf opin og langflestar innlagnir, eða þrjár af hverjum fjórum, eru bráðainnlagnir. Biðlisti þessarar deildar er einnig nokkuð breytilegur og hefur verið lengri. Bráðainnlögnum hefur fjölgað verulega að undanförnu og vegna þess álags sem það hefur valdið þurfa þau börn og ungmenni sem eru á biðlista til innlagnar að bíða lengur fyrir vikið.
    Á biðlista göngudeildarinnar í mars 2011 voru 79 börn og unglingar, sbr. eftirfarandi töflu:

Göngudeild BUGL – 2011 Janúar Febrúar Mars
Heildarfjöldi á biðlista, þar af: 85 79 79
     á biðlista lengur en þrjá mánuði 45 39 39
     meðalbiðtími í mánuðum 6,2 6 5,4

    2.     Hversu löng er biðin að jafnaði?
    Bið eftir fyrstu komu í göngudeild getur verið mjög breytileg. Bráðamál bíða ekki og eru strax metin af bráðateymi. Göngudeildarmálum er forgangsraðað eftir því hversu brýn og alvarleg þau eru. Málum sem fá forgang er sinnt innan þriggja mánaða en sumir einstaklingar geta þurft að bíða allt upp í eitt ár (sjá töflu hér að framan). Þau mál eiga að vera til meðferðar hjá tilvísanda á biðtímanum.

    3.     Hvernig hefur fjöldi þeirra sem bíða þjónustu BUGL þróast undanfarinn áratug?
    Undanfarinn áratug hefur biðlisti BUGL verið nokkuð breytilegur milli ára og tímabila sem og eftir árstíma. Lítil breyting hefur orðið á aðstreymi nýrra mála bæði hvað varðar tilvísanir og bráðamál á þessum tíma. Samanlagt hafa ný mál yfirleitt verið 400–500 ár hvert allt frá árinu 1998. Einnig hefur fjöldi starfsmanna sem sinna þessum málum verið breytilegur á tímabilinu. Aukafjárveitingar til BUGL sem veittar hafa verið af og til á síðasta áratug hafa hjálpað til við að halda biðlistanum í skefjum. Með þeim aðgerðum hefur tekist að ná listanum niður með sérstöku átaki eða tímabundinni fjölgun starfsmanna. Mestur hefur biðlistinn orðið hátt á annað hundrað en yfirleitt hafa ekki færri en 50 einstaklingar beðið eftir þjónustu á BUGL hverju sinni. Eitt ár tókst nánast að eyða biðlistanum en hann myndaðist fljótlega aftur. Undanfarin tvö ár hefur málum sem bráðateymi BUGL sinnir fjölgað nokkuð. Þá hefur innlögnum á legudeildirnar fjölgað verulega á sama tíma en meðallegutími styst mikið.
    Eftirfarandi línurit sýnir hvernig fjöldi þeirra sem bíða eftir þjónustu á göngudeild BUGL hefur þróast undanfarinn áratug:

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    4.     Hvernig hyggst ráðherra stytta biðlistann eða eyða honum?
    Af framangreindu má sjá að ekki hefur tekist að vinna varanlega á biðlista eftir þjónustu BUGL með aukafjárveitingum og átaksverkefnum. Líklegra til árangurs er að endurskipuleggja innri þjónustu og skipulag hjá BUGL með það að markmiði að auka skilvirkni. Enn fremur þarf að endurskoða tilvísanakerfi í þjónustu BUGL og skilgreina betur þann markhóp sem BUGL er ætlað að sinna sem þriðja stigs sjúkrahúsþjónusta. Ljóst er að styrkja þarf bæði fyrsta og annars stigs geðheilbrigðisþjónustu og sálfélagslega þjónustu í nærumhverfi barna og ungmenna um allt land og það þarf að gera með ýmsum hætti, meðal annars með auknu samstarfi BUGL við félags- og skólaþjónustu sveitarfélaga svo og heilsugæsluna. BUGL hefur nú þegar gert samstarfssamninga við nokkrar heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu um þátttöku sérfræðinga BUGL í samráðsfundum í þjónustuteymum sem ætlað er að sinna börnum og ungmennum með geðheilbrigðisvanda. Enn fremur hefur BUGL tekið þátt í samvinnuverkefnum með heilsugæslunni á Austurlandi og Vestfjörðum með það að markmiði að styrkja heilsugæsluna til þess að verða þekkingarmiðstöð í geðheilbrigðismálum barna og ungmenna í landsfjórðungunum. Það er mikilvægur þáttur í því hlutverki BUGL að vera leiðandi í kennslu og ráðgjöf til annarra þjónustuaðila varðandi geðheilbrigðismál barna og ungmenna.