Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 638. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1321  —  638. mál.




Svar



velferðarráðherra við fyrirspurn Kristjáns Þórs Júlíussonar um hjúkrunarrými á Eyjafjarðarsvæðinu.

     1.      Hversu mörg hjúkrunarrými verða á öldrunarheimilum Akureyrar samkvæmt sparnaðarkröfum ráðuneytisins á þessu fjárlagaári?
    Á öldrunarheimilum Akureyrar verða 168 hjúkrunarrými á árinu 2011. Auk þess eru skráðar heimildir fyrir 12 hjúkrunarrýmum á Sjúkrahúsinu á Akureyri.

     2.      Hvaða áætlanir hefur ráðuneytið um fjölgun eða fækkun hjúkrunarrýma í framtíðinni á öldrunarheimilum Akureyrar?
    Áætlanir ráðuneytisins miða að því að mæta sem best þörfum aldraðra á Akureyri hvað varðar þjónustu og fjölda hjúkrunarrýma miðað við þær fjárveitingar sem samþykktar eru af Alþingi til málaflokks aldraðra hverju sinni. Á árunum 2009–2011 hefur því miður þurft að lækka fjárveitingar og fækka hjúkrunarrýmum vegna þröngrar stöðu ríkissjóðs. Á þessu tímabili hefur verið fækkað á landinu öllu um 154 hjúkrunarrými alls. Þar af hefur hjúkrunarrýmum á öldrunarheimilum á Akureyri fækkað um tvö rými. Áætlanir liggja ekki fyrir um fjölgun eða fækkun hjúkrunarrýma fyrir árið 2012 þar sem fjárlagarammi fyrir það ár liggur ekki enn fyrir.

     3.      Á grundvelli hvaða reiknilíkans var tekin ákvörðun um fækkun hjúkrunarrýma hjá öldrunarheimilum Akureyrar og var við þann útreikning tekið tillit til breytinga á tvíbýlum yfir í einbýli sem gerðu það að verkum að töluverð fækkun hafði þegar átt sér stað á heimilunum?
    Ásamt upplýsingum úr reiknilíkani sem sýndi m.a. fjölda hjúkrunarrýma og reiknaða þörf fyrir hjúkrunarrými í hlutfalli við fjölda aldraðra á viðkomandi svæði lágu eftirfarandi forsendur til grundvallar fækkun hjúkrunarrýma fyrir árið 2011:
     –      Í fyrsta lagi voru fjárveitingar vegna ónotaðra hjúkrunarrýma felldar niður.
     –      Í öðru lagi var reynt að fækka frekar dvalarrýmum en hjúkrunarrýmum í samræmi við þá stefnu stjórnvalda að auka heimahjúkrun til að hjálpa öldruðum að vera lengur heima og draga þannig úr þörf fyrir dvalarrými.
     –      Í þriðja lagi var reynt að beina niðurskurði frekar að stærri hjúkrunarheimilum en minni og þá sérstaklega þeim heimilum þar sem unnið er að því að fækka fjölbýlum eða ljóst að ráðast þurfi í slíkar aðgerðir. Talið var að stærri heimilin mundu frekar ráða við niðurskurðinn en smærri hjúkrunarheimili.
     –      Í fjórða lagi var hjúkrunarrýmum fækkað þar sem fjöldi hjúkrunarrýma var umfram metna þörf á viðkomandi þjónustusvæði.
     –      Í fimmta lagi var tekið mið af fækkun hjúkrunarrýma á árunum 2009 og 2010 og reynt var að hlífa þeim heimilum þar sem skorið hafði verið niður áður.
    Í þriðju forsendu er tekið tillit til fækkunar fjölbýla, en sú forsenda átti ekki við á öldrunarheimilum Akureyrar. Á öldrunarheimilum Akureyrar var fækkað um þrjú hjúkrunarrými á árinu 2010 þar sem upplýsingar frá Tryggingastofnun ríkisins sýndu vannýtingu rýma á árunum á undan. Hjúkrunarrýmin á öldrunarheimilum Akureyrar voru því 167 árið 2010 í stað 170 árið 2009. Árið 2011 var aftur á móti bæði bætt við hjúkrunarrýmum og dvalarrýmum breytt í hjúkrunarrými þannig að heildarfjöldi hjúkrunarrýma á öldrunarheimilum á Akureyri er núna 168. Einu rými fleira en árið á undan en tveim færra en árið 2009.

     4.      Hversu mikið hefur hjúkrunarrýmum á öldrunarheimilum á Eyjafjarðarsvæðinu, þ.m.t. Siglufirði, fækkað frá árinu 2005, sundurliðað eftir árum, og hversu mikið er áætlað að hjúkrunarrýmum verði fækkað á komandi árum?
    Frá árinu 2005 til ársins 2011 hefur hjúkrunarrýmum á öldrunarheimilum á Eyjafjarðarsvæðinu fjölgað um 20, sbr. meðfylgjandi yfirlit. Hins vegar liggja ekki fyrir áætlanir um frekari fækkun á komandi árum.

Fjöldi hjúkrunarrýma 2005–2011.


Hjúkrunarheimili 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011
Grenilundur, Grenivík 2 2 2 4 4 4 4
Hornbrekka, Ólafsfirði 20 20 20 20 20 18 18
Dalbær, Dalvík 24 24 24 24 24 24 24
Öldrunarstofnun Akureyrar 140 170 170 170 170 167 168
Heilbrigðisstofnunin Siglufirði 28 28 28 28 28 27 20
Samtals 214 244 244 246 246 240 234
Breyting hjúkrunarrýma 30 0 2 0 –6 –6
Fjölgun frá árinu 2005 30 30 32 32 26 20

     5.      Hversu mikið hefur hjúkrunarrýmum hjá Sjúkrahúsinu á Akureyri fækkað frá árinu 2005, sundurliðað eftir árum, og hversu mikið er áætlað að hjúkrunarrýmum verði fækkað á komandi árum?
    Frá árinu 2005 til ársins 2011 hefur hjúkrunarrýmum fækkað um 15, sbr. meðfylgjandi yfirlit. Átta hjúkrunarrými voru nýtt á sjúkrahúsinu árið 2011. Áætlanir liggja ekki fyrir um frekari fækkun á komandi árum.

Fjöldi hjúkrunarrýma 2005–2011.


Hjúkrunarheimili 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011
Sjúkrahúsið á Akureyri 27 27 27 27 12 12 12
Samtals 27 27 27 27 12 12 12
Breyting hjúkrunarrýma 0 0 0 –15 0 0
Fækkun frá árinu 2005 0 0 0 –15 –15 –15

     6.      Hver er stefna ráðherra varðandi rétt aldraðra til að fá fast hjúkrunarrými á þeim stað sem þeir hafa búið á fram að flutningi á öldrunarheimili?
    Stefna ráðuneytisins grundvallast á ákvæðum laga um málefni aldraðra, nr. 125/1999, með síðari breytingum. Í fyrstu grein þeirra laga kemur fram að markmið laganna sé að aldraðir eigi völ á þeirri heilbrigðis- og félagslegu þjónustu sem þeir þurfa á að halda og að hún sé veitt á því þjónustustigi sem eðlilegast er miðað við þörf og ástand hins aldraða. Í anda þeirra laga er það stefna ráðuneytisins að tryggja öldruðum, sem þess þurfa, aðgang að hjúkrunarheimili í sinni heimabyggð eða sem næst heimahögum.

     7.      Er það í samræmi við stefnu ráðherra að aldraðir þurfi að taka fast hjúkrunarrými í öðru sveitarfélagi, sem viðkomandi hefur engin tengsl við, í stað þess að fá hjúkrunarrými í heimasveitarfélagi viðkomandi, sökum fækkunar hjúkrunarrýma heima fyrir? Hefur það áhrif á framtíðarrétt viðkomandi einstaklings ef hann neitar að taka slíku plássi?
    Eins og komið hefur fram í svörum við þessari fyrirspurn er stefna ráðuneytisins að tryggja öldruðum, sem þess þurfa, aðgang að hjúkrunarheimili í sinni heimabyggð eða sem næst heimahögum.
    Vistunarmat er staðlað, faglegt og einstaklingsbundið mat á þörfum einstaklinga sem notað er til að meta þörf þeirra fyrir varanlega búsetu í hjúkrunarrými og er forsenda fyrir umsókn um dvöl í hjúkrunarrými. Áður en óskað er eftir vistunarmati á að vera búið að fullreyna önnur úrræði til að styðja fólk til dvalar heima. Gildistími vistunarmats er tólf mánuðir og það er vistunarmatsnefnd í heilbrigðisumdæmi viðkomandi einstaklings sem fer yfir umsóknina. Miðað er við að niðurstaða liggi fyrir innan sex vikna frá því að vistunarmatsnefnd berst beiðni um vistunarmat. Ef einstaklingur er metinn í þörf fyrir hjúkrunarrými fer hann á biðlista eftir slíku rými.
    Þegar hjúkrunarrými losnar tekur stjórn stofnunar ákvörðun um vistun einstaklings í hjúkrunarrými í samræmi við niðurstöður vistunarmatsnefndar í sínu heilbrigðisumdæmi. Getur hún valið á milli þriggja einstaklinga sem sjálfir hafa óskað eftir að dveljast þar og eru með gilt vistunarmat. Einstaklingur getur neitað tilteknu plássi. Það hefur ekki áhrif á framtíðarrétt hans en gæti lengt bið eftir viðeigandi þjónustu.
    Að lokum má geta þess að leitast er við að haga uppbyggingu hjúkrunarheimila á hverjum stað í samræmi við fyrirsjáanlega þörf og í samræmi við það fjármagn sem til þessa verkefnis er ætlað á hverjum tíma. Þannig er reynt að mæta þörfum og óskum aldraðra eins og frekast er unnt og aðstæður leyfa.